Geðheilbrigðismál.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Ingibjörgu Isaksen fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Hver voru loforð Viðreisnar í síðustu kosningum? Þau voru að setja í forgang að vinna niður biðlista barna, að tryggja ókeypis sálfræðiþjónustu fyrir börn og efla forvarnir og tryggja meðferðarúrræði, öryggi og velferð barna og ungmenna. Þetta voru loforðin. Hver er staðan, virðulegur forseti, í þessum málaflokki í dag? Tæplega 2.500 börn eru á biðlista hjá Geðheilsumiðstöð barna, 717 börns hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð og það eru tæplega 5.000 börn á biðlista eftir að fá þjónustu talmeinafræðings, 5.000 börn. Stór hluti af þessum hópi eru einhverf börn og biðtíminn er 38 mánuðir, virðulegi forseti, 38 mánuðir. Og hvað hefur ríkisstjórnin gert í þessum málaflokki? Jú, með algeru sambandsleysi og samráðsleysi var Janus endurhæfing lögð af. Ekkert samtal, engin heimsókn frá ráðherra til Janusar endurhæfingar til að ræða þessi mál. Hvað hefur orðið um þau börn og ungmenni sem nutu þjónustu Janusar endurhæfingar? Þó nokkur hluti af þeim hefur fallið á milli kerfa og fær hvergi þjónustu í dag. Nýjasta afrek ríkisstjórnarinnar er að hætta að þjónusta Foreldrahús sem í 40 ár hefur sinnt þúsundum barna og ungmenna sem eru í fíknivanda og foreldrum þeirra — 40 ár. Og hvert er framlag ríkisins? Jú, það er um 30 millj. kr. á ári. Af hverju er þetta að gerast? Af því að ráðherrann svarar ekki. Algjört áhugaleysi á þessum málaflokki. Svarar ekki. Hvað verður um þjónustuna við þau börn sem njóta þjónustu Foreldrahúss í dag? Það er ekkert úrræði sem tekur við.
Virðulegur forseti. Ég þakka fyrir þessa umræðu og hún mætti vera oftar hér í þingsal. (Forseti hringir.) En ég held að það sé kominn tími á það, virðulegur forseti, að hv. þingmenn stjórnarflokkanna (Forseti hringir.) og ekki síst Viðreisnar hætti að tala um hvað þeir séu góðir og fari að einbeita sér að því að gera gott.
(Forseti (BHar): Forseti minnir hv. þingmenn á að ræðutíminn er tvær mínútur undir þessum dagskrárlið.)