157. löggjafarþing — 101. fundur,  28. apr. 2026.

Geðheilbrigðismál.

[14:51]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf):

Virðulegur forseti. Fyrir rúmu ári síðan, stuttu fyrir síðustu alþingiskosningar, heimsótti ég ásamt núverandi hæstv. forsætisráðherra Kristrúnu Frostadóttur, sem þá leiddi lista Samfylkingarinnar í Reykjavíkurkjördæmi norður, réttargeðdeildina á Kleppi. Það var sérstök upplifun að ganga þar um eina hæð deildarinnar sem var frosin á framkvæmdastigi, hæð þar sem framkvæmdir voru hafnar og við gengum um malbikuð gólf innan um nýmalbikaða veggi og súlur, en allt var stopp. Enginn maður var við vinnu. Framkvæmdir höfðu verið stöðvaðar vegna þess að fjármögnun hafði ekki fengist í verkefnið frá þáverandi ríkisstjórn þrátt fyrir gefin loforð, þrátt fyrir að verkið væri hafið. Það var ekki klárað. Í sömu heimsókn fórum við um þann hluta réttargeðdeildarinnar sem var í notkun. Okkur var sýnd aðstaða þar sem starfsfólk vinnur eftir bestu getu við krefjandi aðstæður, stundum jafnvel hættulegar, í ófullkomnum og ég leyfi mér að segja fullkomlega óviðunandi húsakosti. Deildin sjálf er úrelt, löngu komin til ára sinna. Þess vegna gleður það mig og ég fagna því að þessi ríkisstjórn, ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur, hefur tryggt fjármögnun í verkefnið. Framkvæmdir eru hafnar á ný og ný réttargeðdeild opnar á næstu vikum. Átta ný öryggisvistunarrými eru í uppbyggingu á Kleppi með fjárfestingum sem hljóða upp á 600 millj. kr. Samhliða því að rýmin verða tekin í notkun losna jafnframt rými á öðrum deildum og þar með mun skapast aukið svigrúm til að bæta þjónustu og meðferð. Þetta er dæmi um forgangsröðun fjármuna þar sem þeir nýtast hvað best.

Framlög til heilbrigðismála nema tæplega þriðjungi af heildarútgjöldum ríkissjóðs og aukast um 57 milljarða kr. á tímabili fjármálaáætlunar. Stór hluti þessarar aukningar fer í brýn verkefni á sviði geðheilbrigðismála. Innviðaskuldin er, eins og dæmin sýna, gríðarleg. Verkefnið er risavaxið og það verður ekki lagað yfir nótt. Það krefst þess af okkur að við forgangsröðum fjármunum í að vinna upp innviðaskuldina (Forseti hringir.) og byggja upp heildstætt kerfi sem við getum verið stolt af. Við eigum að vera stolt af þeirri geðheilbrigðisþjónustu sem við veitum hér á landi.