umræða um breytingu á húsaleigulögum.
Málshefjandi var .
umræða um breytingu á húsaleigulögum.
Virðulegi forseti. Hér á dagskrá þingsins í dag er framhald 1. umræðu um frumvarp hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á húsaleigulögum. Ég verð að segja að mér finnst skjóta skökku við að málið sé á dagskrá í dag í ljósi ummæla sem fallið hafa, m.a. af hálfu seðlabankastjóra sem hefur nú bara lýst efni málsins sem heimskulegu, en ekki bara í því ljósi heldur einmitt í ljósi þeirrar umræðu sem við áttum hér um málið á mánudaginn við 1. umræðu, við upphaf þeirrar umræðu. Þar kom einmitt fram óánægja þingmanna með skort á samráði við samningu þessa frumvarps og kynningu á því í aðdraganda framlagningar þess á þinginu. Umræðan verður auðvitað mjög grunn og undarleg og kannski skökk þegar þingmenn fá ekki innsýn í aðdraganda vinnu að lagafrumvarpi sem þessu, sem varðar marga mjög mikið og efnahagslífið allt mjög mikið. Nú er komin í ljós þessi einkunn seðlabankastjóra um að málið sé heimskulegt og ég hefði talið fara betur á því að fresta umræðu um þetta mál til að gefa (Forseti hringir.) þingmönnum kost á að kynna sér það til hlítar fyrir 1. umræðu.
Forseti vill af þessu tilefni benda þingmönnum á að málið er á dagskrá þingfundar í dag og umræða um það hófst í fyrradag
Frú forseti. Ég held að það sé engin ástæða til að fresta þessu máli og láta yfirlýsingagleði ágæts kunningja míns trufla okkur. Hann hefur áður verið með hinar og þessar yfirlýsingar, svo sem um tásumyndir og að ungmenni eigi að búa lengur heima hjá sér. Þetta mál sem er hér til umræðu er einfaldlega að færa reglur varðandi húsaleigumarkaðinn eitthvað í átt við það sem er á hinum Norðurlöndunum. Það ætti því miklu frekar að stuðla að verðhjöðnun en verðhækkun. Þess vegna er ég mjög hissa á því að ágætur kunningi minn, seðlabankastjórinn, skuli taka þessu máli svona illa. Ég vænti þess, þegar hann skoðar málið nánar, að þá muni hann frekar gefa frá sér jákvæða yfirlýsingu. Ég ætla ekki að segja hver hún verði en það er alltaf gaman að hlýða á hann, hvort sem það er hvað varðar þetta mál eða önnur. En eru aðrir seðlabankastjórar í Evrópu með (Forseti hringir.) svona yfirlýsingar um hitt og þetta? Nei. Ég held að við verðum að skoða þetta í því ljósi.
Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen og óska eftir að þessari umræðu verði frestað. Eru aðrir seðlabankastjórar, erlendis, með svona? Sennilega ekki, enda búa þau sennilega ekki við svona galin frumvörp eins og við búum hér við á Alþingi Íslendinga. Við erum með tvo hagfræðinga í þessari ríkisstjórn en hvaða búum við við? Við lifum í hagfræði Flokks fólksins. Það eru frumvörpin sem eru að koma hérna inn, fullt af frumvörpum sem eru til þess fallin, frú forseti, að hjálpa ekki fólkinu í landinu. Tilgangurinn er góður en þau ná ekki markmiðum sínum. Þannig að mér fannst eðlilegt að fulltrúar frá alla vega Viðreisn og Samfylkingu komi í umræðuna. Þau komu ekki í umræðuna hérna í fyrradag þannig að mér finnst að það eigi að fresta þessu og fá hæstv. ráðherra frá Samfylkingu og Viðreisn, sem ég man ekki eftir að hafi verið hérna í umræðunni, í umræðuna til að sjá vilja þessarar ríkisstjórnar.
Virðulegi forseti. Ég kom hér upp til að taka undir með hv. þingmönnum Sigríði Á. Andersen og Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur. Mér fannst hins vegar það góða við þessi orðaskipti hér að þetta dró alveg saman efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar. Hv. þm. Sigurjón Þórðarson, sem er nú öflugasti stjórnarþingmaðurinn, lítur svo á að þegar seðlabankastjóri tjái sig sé það bara einhver kunningi hans eitthvað að hjala. Honum finnst það bara hundleiðinlegt. Þetta er efnahagsstjórn ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur. Það er bara einhver kunningi að hjala eitthvað og hann bara hvetur hann til að hætta því.
Virðulegur forseti. Þetta er ástæðan fyrir því að verðbólgan fer ekki niður. Þegar við erum með ríkisstjórn sem hlustar ekki á fjármálaráð, hlustar ekki á seðlabankastjóra, hlustar ekki á neinar ráðleggingar (Forseti hringir.) helstu sérfræðinga þá er títtnefnt plan ekki að virka. Ég hvet, virðulegi forseti, stjórnarmeirihlutann til að kæla þetta mál aðeins og skoða það betur.
Virðulegur forseti. Ég ætla að blanda mér aðeins í þessa umræðu. Eins og raunar þingmaður Samfylkingarinnar gerði í upphafi 1. umræðu vek ég athygli á því að HMS flaggaði því í greiningu sinni fyrir hálfu öðru ári, að vegna þess að leiguverð hefði þróast hægar heldur en fasteignaverð, m.a. vegna tilkomu óhagnaðardrifinna félaga, tvöföldunar stúdentaíbúða og annarra aðgerða á leigumarkaði, væri hætta á því, ef ekkert væri að gert, að leiguverð myndi þróast hraðar heldur en aðrir þættir í efnahagslífinu og það hefði m.a. bein áhrif á verðbólgu.
Ég átta mig á því að það er á margt að líta í þessu og ef leigubremsa er ekki tímabundin getur hún haft óæskileg áhrif til lengdar. Þetta er einfaldlega eðlilegt að skoða í nefnd, skoða öll gögn málsins og ég spái því að niðurstaða flestra þingmanna og þeirra sem skoða þetta með opnum gagnrýnum augum verði sú að leigubremsa við núverandi aðstæður geti verið nákvæmlega það sem þarf fyrir leigumarkaðinn, verðbólguna og efnahagslífið. En þá þarf líka að klára umræðuna og fá málið í nefnd.
Virðulegur forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen. Ég vil hvetja hæstv. forseta til að skoða það allverulega í ljósi orða seðlabankastjóra núna í morgun um að þetta væri heimskuleg aðgerð. Hann fór svo ítarlega yfir það hvað þetta þýddi og sagði að þetta væri nánast 101 í hagfræði. Í ljósi þeirra alvarlegu athugasemda sem hafa komið frá Seðlabanka Íslands þá skulum við byrja á því að taka þetta mál í samráðsgátt. Það sem verra er, og er mun verra, er að í gær var undirrituð framlenging á kjarasamningum við breiðfylkinguna svokölluðu og þar er þetta mál inni. Þetta frumvarp er einn hluti af kjarasamningunum sem voru undirritaðir í gærkvöldi, virðulegur forseti.
Ég legg til að þetta mál, virðulegur forseti, byrji á því að fara í samráðsgátt, eins og mál eiga að gera, og fari í eðlilegan farveg og síðan verði umræðan tekin.
Frú forseti. Það kom ítarlega fram, held ég, í umræðunni hér um daginn þegar við vorum að ræða þetta mál að það var alloft bent á að þetta mál, eins og önnur slík, ætti auðvitað heima í samráðsgátt og það var tiltölulega vel rökstutt. Kannski er þingheimi ljóst nú að það hefði betur gert það því að þá værum við að fá svona umsagnir og einkunnir, eins og seðlabankastjóri er að gefa frumvarpinu núna, inn í samráðsgáttina til umfjöllunar í nefnd frekar en í fjölmiðlana. Það hefði bara styrkt þinglega meðferð málsins. Þannig að ég ítreka, frú forseti, mikilvægi þess að svona mál rati inn í samráðsgáttina og að það sé ekki notaður einhver rökstuðningur um að það hafi efnis frumvarpsins vegna þurft að fara þessa leið. En þá minni ég aftur á það að gildistakan er 1. júlí 2027.
Frú forseti. Ummæli seðlabankastjóra eru hér til umræðu. Að mínu mati eru þau fullkomlega óábyrg, sérstaklega í ljósi þess að við erum, eins og hv. þm. Sigurjón Þórðarson kom inn á undir fundarstjórn í sinni ræðu, að nálgast réttarvernd þá réttarvernd sem íbúar á leigumarkaði búa við á Norðurlöndunum. Er seðlabankastjóri að segja með sínum yfirlýsingum að stjórnvöld, t.d. á Norðurlöndunum, Svíþjóð, Finnlandi, Skandinavíu, kunni ekki grundvallarhagfræði? Er seðlabankastjóri raunverulega að segja það? Ef seðlabankastjóri er að tala um að vera á móti verðstýringu, hvað segir það um stýrivaxtahækkanir og stýrivexti almennt, sem eru ekkert annað en verðstýring á því sem kostar að fá peninga lánaða? Ég skil ekki þessar yfirlýsingar og ég skil ekki þennan mótþróa. Ég skil það hjá stjórnarandstöðunni sem er á móti öllu sem við reynum að gera til þess að bæta stöðu þeirra sem höllum fæti standa í okkar samfélagi, (Forseti hringir.) öllu, í einu og öllu. Ég hvet ykkur til að endurhugsa þetta. (Forseti hringir.) Keyrum þetta mál áfram og klárum það.
Virðulegur forseti. Hún er náttúrlega að dragast enn þá skýrar upp þessi mynd að ríkisstjórn Íslands lítur svo á að helsta efnahagsvandamálið séu ráðleggingar sérfræðinga. Það er helsta vandamálið. En gæti það verið að ástæðan fyrir því að planið virkar ekki, sleggjan virkar ekki, vextirnir hækkuðu eftir að ríkisstjórnin tók við og hóf aðgerðir sína sé sú að ríkisstjórnin hlustar ekki á sérfræðinga og seðlabankastjóra? Er einhver möguleiki á því? Gæti það verið? Allt það sem ríkisstjórnin sagðist ætla að gera hefur ekki gengið eftir. Fjármálaráð sem samanstendur af tveimur doktorum í hagfræði og einum master — það var ekkert gert með það. Lög um opinber fjármál brotin. Síðan koma hæstv. ráðherra og hv. þingmaður og fara að tala um þennan seðlabankastjóra sem veit ekki neitt um hvað hann er að tala (Forseti hringir.) og þau skilja ekkert í þessu og þeim finnst ótrúlega eðlilegt að hann sé að tjá sig. Gæti verið að vandamálið sé ekki sérfræðingarnir? (Forseti hringir.) Gæti það verið? Gæti verið að það sé ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur sem er helsta vandamálið þegar kemur að baráttunni gegn verðbólgu? Já, það gæti verið.
Virðulegur forseti. Það er ótrúlegt að hlusta hér á orð hæstv. ráðherra þegar hann kemur upp og talar um óábyrgt tal seðlabankastjóra. Þetta er sami söngurinn og heyrðist þegar var verið að tengja örorkubætur við launavísitölu, sem var sagt að myndi kosta í mesta lagi 3 milljarða og er komið í ljós núna að mun kosta 9 milljarða. Þá heyrðist sami söngurinn um viðvörunarorð Seðlabankans sem fékk ekki einu sinni að koma fyrir nefndina. Það er ekki að ástæðulausu að flest mál Flokks fólksins fara bara ekki í samráðsgátt. Þetta eru svo slæm mál og ef menn eru í einhverjum vafa ættu þeir að horfa á þingmenn Viðreisnar sem læðast með veggjum, þöglir um gangana, í hvert einasta skipti sem þingmál Flokks fólksins koma hér á dagskrá. Hv. þingmenn Viðreisnar eru vitnisburður um það hvað þessi mál eru léleg og ástæða fyrir því að það er ekki hægt að setja þau í samráðsgátt og þau eru keyrð hérna í gegn. (Forseti hringir.)
Virðulegur forseti. Ég hvet þig, í ljósi þess að það er búið að benda á af seðlabankastjóra að þetta sé heimskuleg aðgerð, til að setja þetta í samráðsgátt.
Virðulegur forseti. Mig langar bara aðeins að koma upp og blanda mér í þessa umræðu sem mér finnst vera orðin mjög áhugaverð, sérstaklega eftir innkomu hæstv. ráðherra Ragnars Þórs Ingólfssonar og hans ræðu hér sem ég held að við þurfum bara aðeins að kryfja og fara betur yfir hér eftir þennan lið og hlusta á hvað hæstv. ráðherra var raunverulega að segja. Það er náttúrlega með ólíkindum að koma hér upp og halda því fram hér í þessum ræðustóli Alþingis að stjórnarandstaðan sé á móti öllu sem verið er að gera til að bæta hag og kjör almennings í landinu, ekki einhverju heldur öllu. Þá langar mig bara að benda hæstv. ráðherra á fjárlagafrumvarp hans eigin ríkisstjórnar sem er að fara að leggja gríðarlegar byrðar og álögur á einmitt tekjulægsta fólkið í landinu. Það er t.d. það sem við höfum verið að benda á. Er hlustað á það? Nei, það er ekkert hlustað á það. Er hlustað á seðlabankastjóra? Nei. Að leggja að jöfnu hér að seðlabankastjóri sé með ákvarðanavald (Forseti hringir.) varðandi stýrivexti og svo þetta ágæta frumvarp sem við erum hér að ræða er náttúrlega galið, virðulegur forseti.
Frú forseti. Ég ætlaði ekki endilega að taka þátt í þessari umræðu en gat ekki orða bundist eftir ummæli hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem hann sagði að ummæli seðlabankastjóra í morgun væru óábyrg. Ég vil setja þessi ummæli í samhengi við önnur ummæli, ræðu hæstv. forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans 10. apríl 2025 þar sem hún sagði efnislega, eins og hún hefur svo sem gert áður, að þegar ríkið gerir minna í ríkisfjármálum til að kveða niður verðbólgu þá þurfi Seðlabankinn að gera meira. Núna sitjum við í súpunni með ríkisstjórn sem hlustar ekki á neinn. Það er sök sér að hún hlusti ekki á okkur í stjórnarandstöðunni en hún hlustar ekki á fjármálaráð, hún hlustar ekki á sérfræðinga fjármálaráðuneytisins og núna eru ummæli Seðlabankans dæmd óábyrg af hæstv. ráðherra. Kann að vera að þetta sé ástæðan fyrir því að efnahagsmál þjóðarinnar eru eins og raun ber vitni?
Frú forseti. Ég kom hér í fyrri ferðinni í fundarstjórn forseta og talaði til frú forseta og lagði þar áherslu á mikilvægi þess að mál sem þessi færu í samráðsgátt. Ég taldi, með vísun til dæma, til ummæla seðlabankastjóra, það vera vísbendingu um að slík mál ættu að fara þessa leið, enda fara þau alla jafna þessa leið. Með þessu í raun að biðla til forseta um að við höldum okkur við þetta verklag til að fá slík viðbrögð frekar inn í nefndarstarfið en inn í einhverja pólitíska orrahríð í miðlunum. Viðbrögð hæstv. ráðherra við þessu er að koma hér í pontu, horfa yfir salinn, sérstaklega á okkur í minni hlutanum og segja að við séum á móti öllu. Ég bendi hæstv. ráðherra á að ég lýsti ekki einu sinni afstöðu minni til málsins. Ég lýsti afstöðu minni til meðferðar málsins. Það er mikilvægt, frú forseti, að gerður sé greinarmunur á þessu.
Frú forseti. Já, mér finnst rétt að ræða fundarstjórn forseta og þá kröfu minni hlutans á þingi að seðlabankastjóri stjórni hér hvað fer á dagskrá og hvað ekki. Mér finnst það svolítið sérkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að þetta mál er ekki að dúkka hérna upp bara allt í einu. Það er auðvitað verið að halda friði á vinnumarkaði og þetta er einn liður í því, sem verkalýðshreyfingin hefur fagnað. Fyrir fram hefði ég haldið að seðlabankastjóri og jafnvel Framsóknarflokkurinn hefðu fagnað þessu máli en samvinnuhugsjónin virðist nú vera týnd þar. Þegar verið er að ræða svona mál til að halda aftur af hækkunum hjá þeim hópum sem standa hvað verst í samfélaginu eru menn tilbúnir að rísa upp á afturlappirnar og jafnvel heimta það að málið fari ekki á dagskrá, mál sem er liður í því að tryggja frið á vinnumarkaði. Ég segi um það: Hugsið aðeins áður en þið farið og notið hér stór orð, bæði um þetta mál og önnur mál sem ganga út á það að halda góðu samkomulagi og friði í samfélaginu.
Virðulegi forseti. Ég get svo vel skilið það að fólk óski hér eftir að þetta mál verði endurskoðað, þ.e. þessi húsaleigulög. Eins og seðlabankastjóri sagði hér á fundi í morgun er þetta auðvitað alveg galið mál. En, virðulegur forseti, ég held að við verðum að virða þessum stjórnarmeirihluta það til vorkunnar að það eru engin mál til að ræða hér í þinginu. Þetta er eiginlega eina málið sem er á dagskrá í dag. Þessi ríkisstjórn virðist ekki geta afgreitt nein mál út úr ríkisstjórninni og hér inn í þingið, alla vega eru þau mál sem lofað var í þingmálaskrá þessarar ríkisstjórnar ekki komin til þingsins. Ég held að það væri hægt að afgreiða þetta mál fljótt og örugglega og það ætti bara að vísa því aftur til ríkisstjórnarinnar sem þarf augljóslega að endurskoða þetta mál því hugmyndin þarna undir er algerlega galin.
Virðulegur forseti. Það er líka augljóst að hér vantar hreinlega bara mál til að setja á dagskrá. Það er ekkert að frétta hjá verkstjórninni miklu.
Frú forseti. Rétt til að svara aðeins þeim mikla þinggleðigjafa hv. þm. Sigurjóni Þórðarsyni þá er náttúrlega meira en lítið kostulegt að heyra þann ágæta mann biðja stjórnarandstöðuna um að hugsa um hvað hún segir þegar kemur að stórum orðum. Þetta er jú sami maður og réðst hér í pontu að íslenskum fjölmiðlum með þeim afleiðingum að styrkir til þeirra voru lækkaðir. Þannig að við skulum aðeins líta í eigin barm hvað þetta varðar. Talandi um fleiri stór orð þá var náttúrulega, eins og er búið að benda hér áður á, hæstv. ráðherra að ráðast að seðlabankastjóra í þessu sama ræðupúlti. Það er lykilatriði líka að bara hlusta á hvað er sagt í þessari fundarstjórn. Ég veit að það er mikið að gerast en hv. þm. Sigurjón Þórðarson, sem ég hef áður á þessum vettvangi beðið um að opna eyrun, hér eru hv. þingmenn stjórnarandstöðunnar að biðja um að þetta mál sé tekið til baka, skoðað betur og jafnvel sett í samráðsgátt til þess að fá það betra inn í þingið þannig að seðlabankastjóri Íslands kalli þetta ekki heimskulega aðgerð.
Frú forseti. Það sýnir sig enn og aftur að sýndarsamráð Samfylkingar og Viðreisnar er betra heldur en samráð Flokks fólksins. Nú sitja hér þingmenn Viðreisnar, fáir að vísu orðið, náfölir yfir því máli sem hér er rætt og þingmenn Samfylkingar margir sveittir eftir að hafa hlaupið undan málinu, eðlilega. Ég heyrði nú ekki allar ábendingar til virðulegs forseta en ég held, svona í ljósi þess sem blasir við núna, að það hljóti að koma til skoðunar og ég bara bið virðulegan forseta um að íhuga það alvarlega, að fresta umræðu um þetta mál þar til það hefur farið í eðlilegan farveg þar sem tækifæri gefst til að koma athugasemdum fram, svo að þetta verði nú ekki eitthvert furðuútspil í þinglokasamkomulagi í desember um að klára jafn ómögulegt mál og hér er á ferðinni, sérstaklega gagnvart hagsmunum þeirra sem minnst mega sín, sérstaklega gagnvart hagsmunum þeirra. Og ágæta þingmenn Samfylkingar og Viðreisnar, sem ég tel mig vita að skilji hversu vont málið er, (Forseti hringir.) vil ég biðja að styðja við bakið á þessari nálgun. Málið mun skána, mögulega hverfa en í öllu falli skána, (Forseti hringir.) við það að fá eðlilega meðhöndlun í aðdraganda framlagningar hér á þingi.