umræða um breytingu á húsaleigulögum.
Frú forseti. Ég ætlaði ekki endilega að taka þátt í þessari umræðu en gat ekki orða bundist eftir ummæli hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra þar sem hann sagði að ummæli seðlabankastjóra í morgun væru óábyrg. Ég vil setja þessi ummæli í samhengi við önnur ummæli, ræðu hæstv. forsætisráðherra á ársfundi Seðlabankans 10. apríl 2025 þar sem hún sagði efnislega, eins og hún hefur svo sem gert áður, að þegar ríkið gerir minna í ríkisfjármálum til að kveða niður verðbólgu þá þurfi Seðlabankinn að gera meira. Núna sitjum við í súpunni með ríkisstjórn sem hlustar ekki á neinn. Það er sök sér að hún hlusti ekki á okkur í stjórnarandstöðunni en hún hlustar ekki á fjármálaráð, hún hlustar ekki á sérfræðinga fjármálaráðuneytisins og núna eru ummæli Seðlabankans dæmd óábyrg af hæstv. ráðherra. Kann að vera að þetta sé ástæðan fyrir því að efnahagsmál þjóðarinnar eru eins og raun ber vitni?