umræða um breytingu á húsaleigulögum.
Frú forseti. Já, mér finnst rétt að ræða fundarstjórn forseta og þá kröfu minni hlutans á þingi að seðlabankastjóri stjórni hér hvað fer á dagskrá og hvað ekki. Mér finnst það svolítið sérkennilegt, sérstaklega í ljósi þess að þetta mál er ekki að dúkka hérna upp bara allt í einu. Það er auðvitað verið að halda friði á vinnumarkaði og þetta er einn liður í því, sem verkalýðshreyfingin hefur fagnað. Fyrir fram hefði ég haldið að seðlabankastjóri og jafnvel Framsóknarflokkurinn hefðu fagnað þessu máli en samvinnuhugsjónin virðist nú vera týnd þar. Þegar verið er að ræða svona mál til að halda aftur af hækkunum hjá þeim hópum sem standa hvað verst í samfélaginu eru menn tilbúnir að rísa upp á afturlappirnar og jafnvel heimta það að málið fari ekki á dagskrá, mál sem er liður í því að tryggja frið á vinnumarkaði. Ég segi um það: Hugsið aðeins áður en þið farið og notið hér stór orð, bæði um þetta mál og önnur mál sem ganga út á það að halda góðu samkomulagi og friði í samfélaginu.