umræða um breytingu á húsaleigulögum.
Virðulegi forseti. Hér á dagskrá þingsins í dag er framhald 1. umræðu um frumvarp hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á húsaleigulögum. Ég verð að segja að mér finnst skjóta skökku við að málið sé á dagskrá í dag í ljósi ummæla sem fallið hafa, m.a. af hálfu seðlabankastjóra sem hefur nú bara lýst efni málsins sem heimskulegu, en ekki bara í því ljósi heldur einmitt í ljósi þeirrar umræðu sem við áttum hér um málið á mánudaginn við 1. umræðu, við upphaf þeirrar umræðu. Þar kom einmitt fram óánægja þingmanna með skort á samráði við samningu þessa frumvarps og kynningu á því í aðdraganda framlagningar þess á þinginu. Umræðan verður auðvitað mjög grunn og undarleg og kannski skökk þegar þingmenn fá ekki innsýn í aðdraganda vinnu að lagafrumvarpi sem þessu, sem varðar marga mjög mikið og efnahagslífið allt mjög mikið. Nú er komin í ljós þessi einkunn seðlabankastjóra um að málið sé heimskulegt og ég hefði talið fara betur á því að fresta umræðu um þetta mál til að gefa (Forseti hringir.) þingmönnum kost á að kynna sér það til hlítar fyrir 1. umræðu.