umræða um breytingu á húsaleigulögum.
Frú forseti. Ég vil taka undir með hv. þm. Sigríði Á. Andersen og óska eftir að þessari umræðu verði frestað. Eru aðrir seðlabankastjórar, erlendis, með svona? Sennilega ekki, enda búa þau sennilega ekki við svona galin frumvörp eins og við búum hér við á Alþingi Íslendinga. Við erum með tvo hagfræðinga í þessari ríkisstjórn en hvaða búum við við? Við lifum í hagfræði Flokks fólksins. Það eru frumvörpin sem eru að koma hérna inn, fullt af frumvörpum sem eru til þess fallin, frú forseti, að hjálpa ekki fólkinu í landinu. Tilgangurinn er góður en þau ná ekki markmiðum sínum. Þannig að mér fannst eðlilegt að fulltrúar frá alla vega Viðreisn og Samfylkingu komi í umræðuna. Þau komu ekki í umræðuna hérna í fyrradag þannig að mér finnst að það eigi að fresta þessu og fá hæstv. ráðherra frá Samfylkingu og Viðreisn, sem ég man ekki eftir að hafi verið hérna í umræðunni, í umræðuna til að sjá vilja þessarar ríkisstjórnar.