Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um Þjóðarsjóð. Að baki Þjóðarsjóði býr sú hugsun að nýta beri góð ár og hagstæð skilyrði í þjóðarbúskapnum til að sýna fyrirhyggju og ábyrgð í ríkisfjármálum og búa þannig í haginn fyrir framtíðina. Skýr ásetningur um að koma Þjóðarsjóði á fót kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar sem undirritaður var fyrir ári en frumvarp þess efnis er hér lagt fram á Alþingi.
Málið á sér nokkurn aðdraganda, en í febrúar 2017 skipaði ég sérfræðingahóp sem samkvæmt erindisbréfi var falið að semja drög að frumvarpi til laga um það sem þá var nefnt stöðugleikasjóður. Hópurinn skilaði drögum að frumvarpi sumarið 2018 sem áfram var unnið með í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og frumvarpið sem ég hef nú lagt fyrir Alþingi er afrakstur þeirrar vinnu.
Í erindisbréfi sérfræðingahópsins sagði m.a. að fyrirséð væri að arður af orkuauðlindum á forræði ríkisins gæti vaxið mjög innan nokkurra ára, sér í lagi vegna meiri fjárhagslegs styrks og afskrifta fastafjármuna Landsvirkjunar. Markmið sjóðsins yrði að byggja upp viðnám til að mæta fjárhagslegum áföllum án þess að það leiddi til skuldasöfnunar eða ójafnvægis í hagkerfinu. Hlutverk hans yrði í fyrsta lagi að byggja upp þjóðhagslegan sparnað með því að taka við og ávaxta fjárhagslegar eignir ríkissjóðs sem til hans eru lagðar og í öðru lagi að ráðstafa fjármununum til ríkissjóðs í samræmi við ákvæði laga. Fjármögnun sjóðsins yrði með þeim hætti að til hans yrði ráðstafað fjárhagslegum arði ríkisins af orkuauðlindum. Meginforsenda ráðstöfunar úr sjóðnum yrði að samþykki Alþingis lægi fyrir.
Sérfræðingahópurinn skoðaði hvernig skilgreina skyldi tilgang sjóðsins og leitaði víða upplýsinga. Víða um lönd eru starfræktir svokallaðir þjóðarauðssjóðir, sem á enskri tungu ganga undir heitinu Sovereign Wealth Funds, og hafa alþjóðleg samtök slíkra sjóða verið starfandi um árabil. Á árinu 2008 voru fyrir tilstuðlan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins samþykktar almennar reglur um þjóðarauðssjóði, svokallaðar Santíagó-meginreglur. Þær kveða á um skýra, lagalega og stjórnskipulega umgjörð um alla þætti í starfsemi slíkra sjóða, skýra markmiðssetningu, sjálfstæði, ábyrgð, heilbrigða ávöxtunarstefnu og gagnsæi. Reglurnar voru hafðar til hliðsjónar þegar frumvarp þetta var samið.
Þjóðarauðssjóðir eru fjárfestingarsjóðir sem ríki eiga og reka í ákveðnum tilgangi. Algengt er að þeir séu byggðir á tekjum af hrávöruútflutningi, gjarnan af óendurnýjanlegri hrávöru, svo sem olíu, kopar, demöntum og þess háttar. Ísland er að ýmsu leyti í annarri stöðu en þau lönd sem hafa stofnað slíka þjóðarauðssjóði. Ólíkt því sem gerist víða annars staðar er t.d. hér á landi fyrir hendi öflugt kerfi lífeyrissjóða. Það kerfi hefur reyndar glímt við nokkurn uppsafnaðan vanda vegna ófjármagnaðra lífeyrisskuldbindinga, en tekið var á þeim vanda hvað varðar A-deildina með samkomulagi ríkis og sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög og lagasetningu í framhaldinu, sem tók gildi á árinu 2017. Hvað B-deild LSR varðar er áætlað að ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar deildarinnar með beinni ábyrgð ríkisins hafi verið orðnar um 620 milljarðar kr. í árslok 2017. Forinngreiðslur sem nema 5 milljörðum hafa staðið yfir frá árinu 2017. Þær hækka nú í 7 milljarða árlega frá árinu 2019 samkvæmt nýsamþykktu fjárlagafrumvarpi og fjármálaáætlun fyrir árin 2019–2023. Það má því segja að við séum með virka áætlun um að taka á þessum vanda sem mun duga ef ekki verður hvikað frá henni. Af hálfu Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hafa verið gerðir sjóðstreymisútreikningar á deildinni til langrar framtíðar. Þeir hafa leitt í ljós að ef forinngreiðslur haldast óbreyttar í um 30 ár eftir 2019 fari deildin aldrei í þrot. Hún getur þá staðið skil á lífeyrisskuldbindingum sínum uns þær verða uppgreiddar í kringum árið 2060. Með þessum ráðstöfunum eru horfur á því að áður en langt um líður verði Ísland eitt örfárra ríkja í heiminum með traustar áætlanir um nánast fullfjármagnað og samræmt lífeyriskerfi fyrir alla landsmenn.
Eins og ég hef hér rakið eru dálítið ólíkar aðstæður uppi á Íslandi en víða annars staðar, við byggjum t.d. ekki útflutning okkar á hrávöru með sambærilegum hætti og mörg önnur ríki sem hafa komið sér upp sjóðum af slíku tilefni. Norðmenn eru til að mynda í raun og veru að breyta olíunni sinni í sjóð. Það gera þeir með þeim hætti sem olíusjóðurinn hefur endurspeglað, sem reyndar hefur fengið nýtt heiti núna. Aðrir hafa þurft að takast á við miklar sveiflur í sínu hagkerfi vegna þess að þar er um að ræða mjög einsleitan búskap í utanríkisviðskiptum sem getur tekið sveiflum, og í því skyni hafa menn stofnað stöðugleikasjóði, en hér á landi eru aðstæður nokkuð aðrar.
Í þessu frumvarpi er lagt til að komið verði á fót varúðarsjóði, svonefndum Þjóðarsjóði. Sjóðnum er ætlað að gegna því meginhlutverki að vera eins konar áfallavörn fyrir þjóðina þegar ríkissjóður verður fyrir fjárhagslegri ágjöf í tengslum við meiri háttar ófyrirséð áföll á þjóðarhag, annaðhvort vegna afkomubrests eða vegna kostnaðar við viðbragðsáætlanir sem stjórnvöld hafa talið óhjákvæmilegt að grípa til í kjölfar áfalls eða til að varna því. Hér er átt við skakkaföll sem eru fátíð, en sagan sýnir að geta riðið yfir á nokkurra áratuga fresti, m.a. stórfelldar náttúruhamfarir, sem gætu stórlaskað byggð, samgönguinnviði, vatnsafls- og jarðhitavirkjanir og stóriðjuver, einnig alvarleg mengunar- eða umhverfisslys, vistkerfisbreytingar, sjúkdómsfaraldra eða önnur áföll sem valdið gætu þungbæru efnahagslegu tjóni umfram þann skaða sem tryggður er með öðrum hætti, svo sem með Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Sem dæmi um slíka stóratburði sem orðið hafa í sögunni má nefna náttúruhamfarir á borð við Skaftárelda og Móðuharðindin eða Heimaeyjargosið, vistkerfisbrest eins og hrun síldarstofnsins, eða mannskæðar farsóttir á borð við spænsku veikina. Einnig gæti verið um að ræða atburði eða kringumstæður af allt öðrum toga, svo sem afleiðingar af stórfelldum netárásum á mikilvæga innviði landsins, hryðjuverk eða atburðarás af öðrum meiði sem er nú algerlega óþekkt og ekki er hægt að sjá fyrir. Aðalatriðið er að við erum hér að ræða um stærri áföll sem ríkissjóður hefði að óbreyttu alls ekki nægilegan fjárhagslegan styrk til að mæta án þess að það leiddi til verulegra samtímaáhrifa á velferð þegnanna vegna skertrar starfsemi hins opinbera eða hefði í för með sér skuldabyrði sem yrði mjög hamlandi eða þungbær um langa hríð. Ófyrirsjáanleiki og óviss stærðargráða slíkra stóráfalla felur í sér að nær ógerlegt er fyrir stjórnvöld að undirbúa sig fyrir afleiðingar þeirra í vanalegri fjárlagagerð og fjárhagsáætlunum til meðallangs tíma, á annan hátt en þann að sýna þá fyrirhyggju að standa fyrir viðeigandi sjóðsöfnun, auk þess að reka ríkissjóð jafnan á traustum og sjálfbærum grunni.
Þessu frumvarpi er ætlað að skapa skýra umgjörð um afgerandi tilgang fyrir myndun fjármuna sem verða til taks samkvæmt sérstakri þinglegri meðferð þegar á þarf að halda vegna stóráfalla. Starfrækslu slíks varúðarsjóðs er ætlað að styðja beint við grunngildi stefnumörkunar sem kveðið er á um í 6. gr. laga um opinber fjármál, þ.e. sjálfbærni, varfærni, stöðugleika, festu og gagnsæi. Fyrirkomulag sjóðsins í frumvarpinu felur ekki í sér að sjóðurinn sjálfur fjármagni beinlínis bætur vegna t.d. tjóns tiltekinna atvinnugreina eða samfélagshópa, heldur verði hann tiltækur til bakstuðnings við ríkissjóð vegna tiltekins metins kostnaður sem hann verður fyrir vegna slíkra atburða. Þannig er gert ráð fyrir að allar viðbragðsráðstafanir verði í höndum stofnana ríkisins með því stjórnskipulagi sem er til staðar í samfélaginu og er ætlað að kljást við slíka atburði, þ.e. á vegum stofnanakerfis stjórnsýslunnar og með tilstuðlan Alþingis, þar með talið með umfjöllun um fjárheimildir.
Stórfellt tjón af völdum náttúruhamfara er sjaldgæft, en sagan kennir okkur þó að umtalsverðar náttúruhamfarir geta orðið hér á landi og munu efalítið verða í framtíðinni. Þegar hefur verið byggður upp mikilvægur viðbúnaður í landinu og skylt er að vátryggja hjá Náttúruhamfaratryggingu Íslands allar húseignir og lausafé sem er brunatryggt hjá vátryggingafélagi. Að auki tryggir Náttúruhamfaratrygging hitaveitur, vatnsveitur, skolpveitur, hafnarmannvirki og ýmis önnur mannvirki. Að baki þessum tryggingum eru erlendar endurtryggingar. Utan trygginganna falla hins vegar stór samgöngumannvirki, svo sem meginhluti vegakerfisins.
Þá getur orðið umtalsvert tjón í tengslum við afleidd áhrif hamfara, sem Náttúruhamfaratrygging bætir ekki. Þjóðarsjóður gerir stjórnvöldum kleift að mæta afleiðingum þess hluta tjóns sem ekki fellur undir tryggingar Náttúruhamfaratryggingar þannig að ríkissjóður komist hjá því að skuldsetja sig úr hófi fram til lengri tíma. Þá skapar sjóðurinn svigrúm fyrir stjórnvöld til að grípa til annarra viðeigandi aðgerða sem nauðsynlegar kunna að verða í kjölfar meiri háttar áfalls.
Í lögum um opinber fjármál er gert ráð fyrir að í fjárlögum sé ávallt fyrir hendi varasjóður sem nemi a.m.k. 1% af heildarfjárheimildum. Það svarar nú til um 8,5 milljarða kr. Sú fjárheimild er einkum ætluð til að mæta frávikum frá launa- og verðlagsforsendur fjárlaga og ýmsum tilfallandi ófyrirséðum útgjaldamálum. Þessi árlega fjárheimild getur því yfirleitt ekki nýst nema í mjög takmörkuðum mæli og þá einungis fyrir ytri áföll sem teldust ekki umtalsverð. Það er því ljóst að sérstakur fjárhagslegur viðbúnaður til að mæta stóráföllum af öðrum völdum en náttúruhamförum, t.d. afdrifaríku umhverfisslysi á fiskimiðum eða mannskæðri farsótt, er ekki fyrir hendi í teljandi mæli hér á landi.
Tilefni lagasetningar um stofnsetningu varúðarsjóðs er einnig það að fyrirséð er að ríkissjóður muni á komandi árum geta haft umtalsverðar nýjar tekjur af arðgreiðslum eða auðlindaafnotagjöldum frá orkuvinnslufyrirtækjum vegna nýtingar á orkuauðlindum á forræði ríkisins, einkum frá Landsvirkjun, fyrst um sinn. Hér þarf þó að hafa í huga að ýmislegt getur haft áhrif á tekjur af þessum toga, svo sem breytingar í orkubúskap, sviptingar á alþjóðlegum orkumörkuðum og tæknibreytingar. Því er engin fullvissa fyrir þeim til langs tíma litið. Hyggilegt þykir að þessar nýju tekjur verði ekki nýttar eins og hver annar tekjustofn til að standa undir reglubundnum ríkisútgjöldum.
Gert er ráð fyrir að á næstunni marki stjórnvöld eigenda- og arðgreiðslustefnu gagnvart orkuvinnslufyrirtækjum í eigu ríkisins, sem feli í sér auknar tekjur ríkissjóðs af nýtingu þeirra á orkuauðlindum, einkum frá Landsvirkjun. Fyrirhugað er að arðgreiðslustefnan liggi fyrir áður en kemur að ákvörðun stjórnar fyrirtækisins um arðgreiðslur til eigenda næsta vor. Þar sem þessar ákvarðanir liggja ekki fyrir á þessu stigi er nokkur óvissa um fjárhæð nýrra tekna af þessum toga, en á opinberum vettvangi hefur verið rætt um 10–20 milljarða kr. á ári hverju. Í frumvarpinu er til bráðabirgða miðað við að tekjur ríkissjóðs aukist árlega um 10 milljarða kr. að lágmarki af þessum völdum og að jafn háu framlagi verði að jafnaði veitt til Þjóðarsjóðs.
Margur kann að spyrja hvort ekki væri nær í stað sjóðsöfnunar að beina fyrst sjónum að skuldum ríkissjóðs eða lífeyrisskuldbindingum. Þar ber að líta til þess að á næsta ári fer ríkissjóður undir skuldaviðmið laga um opinber fjármál. Vaxtabyrði af lánum er nú að verða sambærileg og var fyrir fall bankanna. Að öðru óbreyttu verða möguleikar ríkissjóðs til frekari niðurgreiðslu skulda takmarkaðir þar sem skuldirnar nálgast þá lágmarksskuldsetningu sem þarf til að viðhalda virkum skuldabréfamarkaði. Því er ekki haldið fram hér að við höfum náð því lágmarki, en við nálgumst það. Hér má einnig hafa í huga að ríkið hefur eignir sem til greina kemur að selja skapist aðstæður til þess á komandi árum. Einkum hefur í því sambandi verið rætt um eignir í fjármálafyrirtækjum, sem gætu komið til álita vilji menn grynnka enn frekar á skuldunum.
Eins og ég hef hér stuttlega rakið þá höfum við með ráðstöfunum í lífeyrismálum skapað þær horfur fyrir okkur að áður en langt um líður verði Ísland meðal örfárra ríkja í heiminum sem hefur mjög traustar áætlanir um fullfjármagnað og samræmt lífeyriskerfi fyrir landsmenn alla. Það er við þessar einstæðu aðstæður sem tillaga að stofnun Þjóðarsjóðs er hér lögð fram.
Því sjónarmiði hefur verið hreyft að fyrir utan það að horfa til skulda eða eftir atvikum uppgreiðslu á lífeyrisskuldbindingum þá ætti að nýta bætta stöðu ríkissjóðs vegna væntinga um auknar arðgreiðslur til að lækka skatta frekar en að nota til sjóðsöfnunar. Skattar á Íslandi eru vissulega tiltölulega háir í alþjóðlegum samanburði, en vilji menn leggja áherslu á lækkun skatta mun svigrúm til þess áfram vera til staðar, óháð Þjóðarsjóði, einkum ef tekst að auka hér framleiðni, bæði í einkageiranum og hjá hinu opinbera, og þá er nær að leggja áherslu á enn betri nýtingu opinberra útgjalda. Þá er að sjálfsögðu einnig til þess að líta að það er ekki fullvissa um auknar tekjur af orkufyrirtækjum til langs tíma litið og af þeim sökum ekki æskilegt að nýta þær eins og hefðbundna tekjustofna til að standa undir auknum ríkisútgjöldum, varanlegum eða sem forsendu fyrir lækkun skatttekna, auk þess sem augljóslega fjárhagslegur viðbúnaður til að mæta stóráföllum yrði lakari ef sú leið væri farin.
Loks má nefna hér að með stofnsetningu Þjóðarsjóðs er ekki áformað að koma á fyrirkomulagi sem stuðlar að efnahagslegum stöðugleika til skemmri tíma eða meðallangs tíma með því að veita mótvægi við reglubundnar eða tímabundnar hagsveiflur. Þetta finnst mér rétt að taka fram vegna þess sem ég gat um í upphafi, að um tíma var vísað til þess að koma á fót eins konar stöðugleikasjóði sem gaf kannski tilefni til að ætla að þessi væri tilgangurinn. Ekki ætti að vera þörf á slíkum viðbúnaði sem kæmi að einhverju marki í staðinn fyrir ráðstafanir sem stjórnvöld eiga að hafa með höndum með tilstuðlan fjármálastefnu hins opinbera og peningamálastefnu samkvæmt því fyrirkomulagi sem lögfest hefur verið með lögum um opinber fjármál og lögum um Seðlabanka Íslands.
Aðeins um fyrirkomulag Þjóðarsjóðs. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að fyrirkomulag sjóðsins verði í meginatriðum þannig að hann fái framlög úr ríkissjóði sem svari til tekna næstliðins árs af arðgreiðslum og leigugreiðslum frá orkuvinnslufyrirtækjum. Sjóðurinn fjárfesti þá fjármuni einvörðungu í erlendum verðbréfum samkvæmt fjárfestingarstefnu sem stjórn hans setur með samþykki ráðherra. Framlögin verði veitt samkvæmt fjárheimildum í fjárlögum með hliðsjón af tekjum af viðkomandi arðgreiðslum en ekki verður þó um að ræða svokallaða mörkun ríkistekna. Þá renni allar tekjur og hagnaður af fjármunaeign sjóðsins til hans.
Gert er ráð fyrir fjárreiðum sjóðsins í fimm ára fjármálaáætlun fyrir hið opinbera og í fjárlögum. Komi til ófyrirséðs áfalls af framangreindum toga og að uppfylltum skilyrðum og mati nefndar á fjárhagsáhrifum áfallsins geti ráðherra gert tillögu um að Alþingi samþykki þingsályktun um að stjórn Þjóðarsjóðs úthluti til ríkissjóðs framlagi sem nemi allt að helmingi eigna sjóðsins vegna eins atburðar, allt að helmingi. Heimildir vegna slíkra framlaga og fjárreiðna sjóðsins að öðru leyti verði jafnframt settar með fjárlögum með atbeina Alþingis. Með þessu fyrirkomulagi er gert ráð fyrir að framlag úr Þjóðarsjóði greiðist eftir á þegar mat á umfangi tjóns fyrir ríkissjóð liggur fyrir frá sérstakri matsnefnd og að ríkissjóður geti því þurft að fjármagna kostnaðinn tímabundið. Þjóðarsjóðurinn verður eign íslenska ríkisins og verður færður í efnahagsreikning ríkissjóðs, enda verður hann í rauninni tiltekið fyrirkomulag á stýringu og ávöxtun á afmörkuðum hluta af peningalegum eignum ríkissjóðs. Fjárhagsleg staða ríkisins batnar því sem stærð sjóðsins nemur.
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að sett verði sérstök stjórn yfir sjóðinn sem fari með yfirstjórn hans. Lagt er til að stjórnin verði skipuð fimm sérfræðingum á sviði fjármála og Alþingi tilnefni þrjá þeirra, forsætisráðherra einn og fjármála- og efnahagsráðherra skipi fimmta stjórnarmanninn sem verði formaður stjórnar án tilnefningar. Stjórnin beri ábyrgð á rekstri sjóðsins, setji sér starfsreglur og geri tillögu um fjárfestingarstefnu hans til samþykktar af ráðherra á grundvelli viðmiða sem lögbundin verða í meginatriðum.
Gert er ráð fyrir að í fjárfestingarstefnu sjóðsins verði útilokaðir fjármálagerningar sem gefnir eru út af fyrirtækjum eða stofnunum sem stunda eða eru viðriðnar starfsemi sem telja má að stangist á við góða siði, svo sem nýting vinnuafls barna og framleiðslu og sölu vopna sem nýtt eru í hernaði, svo dæmi séu tekin. Þá verður stjórn sjóðsins ætlað að semja við fagaðila með viðeigandi sérþekkingu á fjármálamarkaði um daglega fjárfestingarstarfsemi. Með þessu fyrirkomulagi verði jafnframt gætt að armslengdarsjónarmiðum, svo sem að ráðherra hafi ekki yfirstjórnunarvald með ákvörðunum stjórnar og hlutist ekki til um einstakar fjárfestingar. Einnig tryggir þetta að ráðherra geti rækt ábyrgð sína á að stjórnin starfi samkvæmt lögum og í samræmi við ábyrga stjórnarhætti og fylgi viðhlítandi fjárfestingarstefnu.
Gengið er út frá því að daglegur rekstur sjóðsins verði hóflegur að umfangi, einkum í upphafi, og að kostnaður vegna sjóðsins greiðist af tekjum hans eða eigin fé. Í sjálfu sér ætti ekki að þurfa að sjá fyrir sér umfangsmikinn rekstur, jafnvel þótt umfang sjóðsins vaxi yfir tíma, þar sem hér er gengið út frá því að stjórn sjóðsins semji við fagaðila um daglega fjárfestingarstarfsemi. Í stórum dráttum verður annars vegar um að ræða þóknanir til stjórnar og annan kostnað við rekstur hennar og hins vegar umsýslugreiðslur til eignastýringaraðila sem gert er ráð fyrir að verði samið við varðandi verðbréfakaup og sjóðstýringu.
Í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er jafnframt kveðið á um það í bráðabirgðaákvæði í frumvarpinu að árleg framlög í Þjóðarsjóð verði tímabundið lægri en arðgreiðslutekjurnar þar sem hluta þeirra verði varið annars vegar til átaks í uppbyggingu hjúkrunarrýma og hins vegar til eflingar nýsköpunar atvinnuveganna. Með öðrum orðum verður það ekki Þjóðarsjóður sem slíkur sem kemur að fjármögnun þessara verkefna heldur verði hluti af svigrúminu sem viðbótararðgreiðslunar veita ríkissjóði nýttur í aukin framlög í þessum tilgangi. Þjóðarsjóðurinn fengi fyrir vikið lægri framlög og byggðist þá nokkru hægar upp til að byrja með.
Hér má geta þess að gert er ráð fyrir því í frumvarpinu að teknar verði sérstakar ákvarðanir um einstaka önnur framlög sem Alþingi ákveður að ráðstafa til sjóðsins. Ef um væri að ræða söluhagnað vegna eignasölu eða ef menn sæju ástæðu til að vista aðrar eignir ríkissjóðs með þessu sjóðsfyrirkomulagi er ekkert sem girðir fyrir að þeim eignum verði ráðstafað til sjóðsins eins og frumvarpið fjallar nánar um. Þá má segja að sjóðurinn á móti myndi byggjast hraðar upp en gengið er út frá í helstu forsendum frumvarpsins.
Hér er eðlilegt að spurt sé hver sé hæfileg stærð sjóðs sem þessa, en markmiðið hlýtur að vera að sjóðurinn verði nægilega stór til þess að ekki þurfi að nýta hann allan í einu áfalli. Miðað við þetta og að einungis verði heimilt að ganga á helming eigna sjóðsins hverju sinni er talið skynsamlegt að stefnt verði að því að framtíðarstærð sjóðsins verði nálægt 250–300 milljörðum kr., eða nærri tíu hundraðshlutar af landsframleiðslu. Ætla má að miðað við þær forsendur sem ég hef hér rakið um arðgreiðslur geti það tekið um 15–20 ár að byggja upp slíkan sjóð miðað við að tekjur af arðgreiðslum eða leigugjöldum frá orkuvinnslufyrirtækjum geti aukist um langa hríð og að því gefnu að ekki þurfi að bæta fjárhagsáföll úr sjóðnum á því tímabili.
Í þessu sambandi má líta til fordæmis Norðmanna þar sem stjórnmálaflokkarnir hafa staðið saman um að láta olíusjóðinn byggjast upp án þess að ganga á hann til að mæta þörfum hins opinbera fyrr en nú, að 20 árum liðnum, þegar stærð hans er orðin um eða yfir 1 billjón bandaríkjadala. Ótrúleg fjárhæð, en ég held ég muni það rétt að sjóðurinn eigi u.þ.b. 1% allra hlutabréfa í heiminum.
Það verður á valdi Alþingis í framtíðinni að meta hvenær Þjóðarsjóður verður orðinn svo stór að tekjum sem honum eru ætlaðar verði betur ráðstafað í annað með því að breyta lögum um sjóðinn og leiðir það af eðli máls að tímarnir geta breyst og eins og ég hef hér rakið er ekki útilokað að á einhverjum tímapunkti taki menn ákvörðun um að ráðstafa sérstökum fjármunum til sjóðsins, sem breytir þá allri þessari tímalínu sem ég hef hér rakið.
Hæstv. forseti. Þjóðarsjóður er hugsaður sem eins konar áfallavörn fyrir þjóðina þegar ríkissjóður verður fyrir meiri háttar ófyrirséðri, fjárhagslegri ágjöf. Ég hef hér rakið að það gæti orðið vegna afkomubrests, eða vegna viðbragðsráðstafana sem stjórnvöld telja óhjákvæmilegt að grípa til. Það gæti verið hvort sem er í kjölfar þess að áfall hefur orðið eða til að varna miklu áfalli. Við þekkjum ýmis dæmi um atvik sem hafa skapað efnahagslega erfiðleika í gegnum tíðina, m.a. af völdum náttúruhamfara, en í breyttum heimi er ekki hægt að útiloka ýmsar annars konar ógnir sem m.a. tengjast tæknivæddri veröld. Ég hef hér komið inn á að það gætu verið netárásir sem gætu valdið stórkostlegu tjóni, alvarleg umhverfisslys og að sjálfsögðu ýmislegt annað sem maður getur ekki séð fyrir, en aðalatriðið er að við erum að skapa vörn vegna meiri háttar efnahagslegs áfalls með því að leggja til hliðar. Fjármunum sjóðsins, eins og ég hef hér rakið, verður eingöngu varið til fjárfestinga erlendis. Það er til þess fallið að dreifa fjárhagsáhættu þjóðarbúsins og varna því að sjóðurinn hafi bein áhrif á einstakar innlendar atvinnugreinar á fyrirtæki.
Ég vil undir lok máls míns segja að það fer vel á því að frumvarp um Þjóðarsjóð sé rætt á Alþingi á 100 ára afmæli fullveldis Íslands og í beinu framhaldi af endurreisn efnahagslífsins eftir eitt stærsta efnahagsáfall sem við Íslendingar höfum þurft að takast á við. Stofnun sjóðsins endurspeglar aga í meðferð fjármuna ríkisins og er til marks um breytta og betri tíma. Sjálfbærni opinberra fjármála styrkist. Það er fallið til að auka traust á íslenskt hagkerfi og þjóðarbúskapinn almennt og þar með getur það eflt lánshæfi landsins. Allir þessir þættir eru til hagsbóta til lengri tíma litið fyrir okkur öll fyrir komandi kynslóðir og velferð þjóðarinnar í víðu samhengi.
Virðulegi forseti. Að öðru leyti vil ég vísa til nánari umfjöllunar, sem er allítarleg, um fyrirkomulag Þjóðarsjóðs í greinargerð frumvarpsins.
Ég legg til að frumvarpi þessu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina í þessu mikilvæga og skynsama máli. Ég er með tvær stuttar fyrirspurnir til hæstv. ráðherra. Í fyrsta lagi: Hvar sér hann fyrir sér að sjóðurinn verði vistaður?
Síðan er í 8. gr. fjallað um að ekki skuli fjárfest í fjármálagjörningum sem gefnir eru út af fyrirtækjum eða stofnunum sem stunda eða eru viðriðin starfsemi sem stangast á við góða siði. Ég vil líka spyrja hæstv. ráðherra: Hver metur það? Hvað eru góðir siðir?
Virðulegi forseti. Það er hugsunin að sjóðurinn sé í höndum sérstakrar sjálfstæðrar stjórnar, að hann starfi samkvæmt fjárfestingarstefnu sem stjórnin leggur til og ráðherra staðfestir. Það er gert ráð fyrir því að allar fjárfestingar hans verði á erlendri grundu og að gerður verði samningur við sérhæfða aðila um að annast daglegar fjárfestingar. Þannig að þegar spurt er hvar er sjóðurinn vistaður þá er hann vistaður hjá stjórninni sem felur síðan fagaðilum að sjá um daglega reksturinn og að uppistöðu til verða eignirnar þannig í erlendum gjaldmiðlum í erlendum verðbréfum.
Varðandi góða siði vék ég stuttlega að því í mínu máli að hér er einkum verið að vísa til þess að menn gæti sín á því að styðja ekki með fjárfestingum við starfsemi sem samrýmist ekki almennu gildismati á Íslandi, þ.e. atvinnustarfsemi sem byggir á barnaþrælkun, svo dæmi sé tekið.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Það er þannig með fjárfestingarstefnu sem þessa að þegar þarf að fjárfesta í hlutabréfum víða um heim, eins og norski olíusjóðurinn hefur gert, getur verið vandasamt að fjárfesta í fyrirtækjum sem hafa algjörlega hreinan skjöld vegna þess að það er hægt að fara á bak við þá hluti með ýmsum hætti, eins og við þekkjum. Þess vegna er afar brýnt fyrir orðstír Íslands að við fjárfestum ekki í fyrirtækjum sem viðhafa vopnaframleiðslu, við erum jú vopnlaus þjóð og þjóð án vopnaframleiðslu, sem er gríðarlega góður orðstír í samfélagi þjóðanna.
Ég vil nota tækifærið og segja örstutt að mér finnst það vera svolítill veikleiki í þessu að ekki kemur fram hver hafi eftirlit (Forseti hringir.) með stjórninni, ef hæstv. ráðherra gæti aðeins komið inn á það.
Virðulegi forseti. Það má segja að við gætum efnt til þó nokkurrar umræðu um það hvers beri að varast í stórum heimi varðandi fjárfestingarnar. Ég held að rétt sé hjá hv. þingmanni að það getur verið auðvelt að gera mistök í því efni vegna þess hve flókin viðskiptaveröldin er orðin. Ég held samt að við hljótum að geta verið sammála um þetta meginmarkmið og að menn gái a.m.k. að sér við slíkar fjárfestingar og hafi þessa stefnu og fylgi henni eftir, m.a. í samningum við þá aðila sem taka að sér að sjá um dagsdaglegar fjárfestingar.
Varðandi eftirlitið sé ég fyrir mér að stjórnin skili skýrslum um gang mála. Það er engin ástæða til annars en að fullt gegnsæi sé um þá hluti og það sé opinbert og eftir atvikum geti þingið kallað eftir nánari skýringum.
Forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir greinargóða yfirferð yfir þetta stóra mál. Mig langar að staldra við stjórn sjóðsins. Nú blasir við að ef vel tekst til, en engin ástæða er til að ætla annað, verða þetta gríðarlegir fjármunir þegar fram í sækir sem stjórnin ber ábyrgð á. Ég velti því fyrir mér hæfisskilyrðum þeirra sem veljast til ábyrgðar eða til stjórnarinnar. Þarna er talað um að geta gegnt stjórnarsetu tilhlýðilega, eins og það er orðað, og einkum horft til þekkingar á fjármálamarkaði og hagfræði. Ég hefði talið skynsamlegt að í lögunum væru gerðar ríkari kröfur, í það minnsta ekki minni en gerðar eru til fjármálafyrirtækja almennt og dettur mér helst í hug í því sambandi hvort ekki væri ástæða til að herða þarna nokkuð á, t.d. með því að taka upp reglur sem varða gott orðspor. Það er þekkt hugtak í fjármálaheiminum og það eru ítarlegar leiðbeiningarreglur um hvað í því felst, m.a. samevrópskar reglur sem Fjármálaeftirlitið okkar styðst við. Ég held því að ástæða sé til þess a.m.k. að girða fyrir að þarna veljist til stjórnar fólk sem veldur ekki (Forseti hringir.) starfinu eða nýtur ekki fyllsta trausts. Þjóðarsjóður er þess eðlis að allir verða (Forseti hringir.) að treysta honum.
Virðulegi forseti. Ég get tekið undir með hv. þingmanni að það skipti máli að stjórnin sé vel skipuð. Hér takast mögulega á sjónarmið um það að hve miklu leyti þurfi að skrifa nákvæmlega út í lögunum hvaða skilyrði þurfi að uppfylla til að eiga þess kost að sitja í stjórninni eða koma til álita við val á stjórnarmönnum. Það má hins vegar ekki gleyma því að við erum að ræða hér að það verði í raun og veru þrír aðilar sem hafi tilnefningarréttinn, þ.e. forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og svo þingið með þrjá stjórnarmenn. Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að þeir aðilar ættu að gera sér grein fyrir þessum sjónarmiðum og mikilvægi þess að þeir sem veljast til starfans hafi ekki stórlaskað orðspor eða séu hvorki með reynslu eða hæfileika eða á annan hátt líklegir til þess að geta sinnt starfinu. En ég held að þetta sé atriði sem er ágætt að ræða í þinglegri meðferð og geri engar athugasemdir við það ef hér myndast einhver meirihlutaskoðun um að þetta mætti skrifa nánar út.
Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Annað sem mig langar að minnast á eru bráðabirgðaákvæðin. Þetta er tryggingarsjóður fyrir hugsanlegum áföllum og áföll verða yfirleitt óvænt. Þarna er sem sagt verið að taka til hliðar og eins og hæstv. ráðherra minntist á fer það raunverulega ekki beint inn í Þjóðarsjóð heldur til tiltekinna verkefna, sem vissulega eru brýn, ég er ekki að kasta rýrð á þau, alls ekki, en maður hefði kannski haldið að fjármálastefna og fjármálaáætlun og fjárlög ættu að takast á við þau verkefni. Þau eru vissulega ekki áföll af neinu tagi. Ég held að rétt sé að hafa mjög ríkt í huga þann freistnivanda sem verður til þegar sjóðnum vex fiskur um hrygg, að menn seilist í hann (Forseti hringir.) til góðra verkefna, sem geta verið af ýmsu tagi. Þá velti ég fyrir mér hvort það sé ekki óheppilegt að setja (Forseti hringir.) einhvers konar fordæmi þegar á upphafsdögum sjóðsins.
Virðulegi forseti. Ég vil taka undir með hv. þingmanni þegar talað er um mikilvægi þess að breið samstaða sé um allan megintilganginn. Það er alveg ljóst að hér er um að ræða almenn lög sem byggja á meirihlutavilja þingsins og ég hef ávallt horft til þess að gríðarlega mikilvægt væri að það væri breið samstaða sem myndi lifa kosningar og meirihlutaskipanir Alþingis hverju sinni um grundvallaratriðin, m.a. um að menn féllu ekki í freistni til að grípa í sjóðinn til þess að sinna ákveðnum verkefnum.
Það er hins vegar svo að við stöndum á ákveðnum tímamótum núna. Við erum í miklu átaki til að breyta um takt í uppbyggingu hjúkrunarheimila, við erum t.d. að koma á nýju íbúðafyrirkomulagi þar sem áður voru margir saman í íbúðum. Það kallar á gríðarlegar fjárfestingar. Við erum sömuleiðis í fyrsta skipti að fara að sjá stórar arðgreiðslur hefjast út úr Landsvirkjun. (Forseti hringir.) Við erum að fara að uppskera í fyrsta skipti og þá er spurning hvort við viljum taka fyrstu uppskeruna og sá til langrar framtíðar (Forseti hringir.) með því að leggja áherslu á nýsköpun. Það er grunnhugsunin að baki bráðabirgðaákvæðum.
Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina á frumvarpinu sem við ræðum um Þjóðarsjóð og stofnun hans. Ég verð að játa að ég hef nokkrar áhyggjur af því að í hugmyndunum um Þjóðarsjóð eins og þær birtast í frumvarpinu sé lögð of mikil áhersla á viðbrögð við náttúruhamförum þegar upphaflegu hugmyndirnar um Þjóðarsjóð snerust um að byggja upp viðnám gegn fjárhagslegum áföllum og kannski sér í lagi af því að við höfum nú þegar ofanflóðasjóð sem hefur heimild til að taka þátt í greiðslu kostnaðar við hættumat vegna eldgosa, vatnsflóða og sjávarflóða og svo Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Ég velti því fyrir mér varðandi þær upphaflegu áherslur sem lagt var af stað með árið 2017 hvort og hvers vegna hafi verið vikið af þeirri braut og nánar inn í einhvers konar náttúru- áfallasjóð. Væri ekki meira viðeigandi þegar við erum að koma á fót Þjóðarsjóði að leggja meiri áherslu í fjárfestingarkaflanum á nýsköpun og græna fjárfestingu og kannski einhvers konar framtíðarfjárfestingar? Mig langar svolítið að heyra skoðun hæstv. ráðherra á því.
Virðulegi forseti. Fyrst varðandi áföllin sem við getum þurft að horfast í augu við. Þau geta sannarlega verið vegna hamfara í náttúrunni og ég hef rakið í máli mínu að það er ekki allt tryggt af Náttúruhamfaratryggingu Íslands, meginstofn, vegakerfi t.d., allar afleiddar afleiðingar af því að veitumannvirki sem tryggð eru af Náttúruhamfaratryggingu Íslands laskast eða lamast, það getur orðið gríðarlegt afleitt tjón sem ríkissjóður myndi stíga inn í, en það er á engan hátt verið að einangra áfallið við það sem gerist í náttúrunni. Það geta verið annars konar áföll, til að mynda eins og ég hef rakið um netárásir á innviði landsins í tæknimálum og annað þess háttar. Það getur gerst af mannavöldum.
Aðalatriðið er að við erum að tala um einhverja meiri háttar viðburði sem ekki er með sanngjörnum hætti hægt að ætlast til að ríkissjóður bregðist við án þess að það leiði annaðhvort til talsvert lakari lífskjara í landinu — við erum þá að tala um meiri háttar niðurskurðaraðgerðir sem þyrfti að grípa til til þess að bregðast við — eða þá til mikillar skuldasöfnunar sem þýddi að við værum að velta atburðunum inn í framtíðina á framtíðarkynslóðir. Þetta er því ekki bundið við það að eitthvað gerist í náttúrunni eða af völdum eldsumbrota eða slíks heldur að þetta séu meiri háttar atburðir.
Varðandi fjárfestingarstefnuna er lagt upp með það hér að sjóðurinn geti orðið það mikill að umfangi að óheppilegt sé að hann sé fjárfestur innan lands. Tekjustreymi Landsvirkjunar, sem við horfum fyrst og fremst til, er að mestu frá erlendum aðilum sem eru með starfsemi á Íslandi og ég hef rakið, og er farið ágætlega yfir það í greinargerðinni, hvers vegna við teljum ráðlegt að fjárfesta utan landsteinanna.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þó svo að fjárfestingarnar séu bundnar við erlenda fjárfestingu held ég að það mætti engu að síður skerpa á áherslum á framtíðarfjárfestingar og grænar fjárfestingar í frumvarpinu.
Mig langar síðan í seinna andsvari að spyrja hæstv. ráðherra um tekjur inn í sjóðinn. Ég velti fyrir mér hvort skynsamlegra væri að gera tekjur Þjóðarsjóðs fjölbreyttari. Hæstv. ráðherra hefur verið tíðrætt um arðgreiðslur úr Landsvirkjun og því spyr ég hvort skynsamlegra væri að láta tekjur koma úr fleiri áttum en úr orkufyrirtækjunum og orkuvinnslufyrirtækjum, til að mynda við sölu eigna o.s.frv., hvort það mætti t.d. gera að fjölbreyttari tekjuleið fyrir sjóðinn.
Virðulegi forseti. Það er sjálfsagt að ræða fjárfestingarstefnuna. Við leggjum það mjög í hendur stjórnar sjóðsins að koma með tillögu að fjárfestingarstefnu en ég held að aðalatriðið þar sé að við náum eðlilegri ávöxtun og það má vel sjá fyrir sér góða ávöxtun með því að leggja áherslu á ákveðna geira, eins og þingmaðurinn bendir á.
Varðandi aðra tekjuuppsprettu verður að segjast eins og er að ástæðan fyrir því að þetta mál verður til eru þau tímamót sem eru að verða í rekstri Landsvirkjunar þar sem við horfum til þess á allra næstu árum að það geti komið arðgreiðslur til ríkisins upp á 10–20 milljarða á ári hverju. Það er meginástæðan fyrir því að við stígum þetta skref núna, án þess að maður girði neitt fyrir að það verði annars konar tekjur, t.d. vegna leigu á orkuauðlindum, (Forseti hringir.) sem skili sér jafnframt þarna inn samkvæmt annarri sérstakri ákvörðun þingsins. Það er líka gert ráð fyrir því að þingið geti tekið ákvörðun um að ráðstafa t.d. andvirði sölu (Forseti hringir.) ríkiseigna til sjóðsins.
Herra forseti. Ég þakka fyrir þessa ágætu umræðu og þakka hæstv. ráðherra. Það eru nokkur atriði sem ég kom ekki að í andsvari sem mig langar aðeins að koma inn á. Í fyrsta lagi tel ég að hér sé um mjög gott mál að ræða og mikilvægan sjóð. Ég fagna því sérstaklega að til hans sé stofnað á 100 ára afmæli fullveldisins. Það er vel við hæfi, eins og hæstv. ráðherra nefndi. Þessi sjóður mun geyma verulegar fjárhæðir, það er nokkuð ljóst, og þess vegna er afar mikilvægt að vel takist til með stofnun hans og alla starfsemi.
Ég vil koma aðeins inn á 3. gr. frumvarpsins þar sem fjallað er um stjórn sjóðsins og hæfisskilyrði. Reyndar kom hv. þm. Jón Steindór Valdimarsson inn á það í andsvari áðan. Hæfisskilyrði verða að vera algjörlega yfir allan vafa hafin. Þess vegna er svolítið brýnt að fá upplýsingar um það hvernig þessir fimm stjórnarmenn eru og verða valdir og hver það er sem velur þá. Hér segir að þrír stjórnarmenn skuli tilnefndir af Alþingi og þá þurfum við að fá upplýsingar um það. Vonandi verður það þá rætt innan nefndarinnar hvernig Alþingi velur þessa þrjá stjórnarmenn. Síðan mun forsætisráðherra velja einn fulltrúa og fjármála- og efnahagsráðherra skipar formann stjórnar.
Það er nauðsynlegt að það verði rætt innan nefndarinnar með hvaða hætti menn sjá fyrir sér að þessir mikilvægu einstaklingar sem verða í stjórn þessa mikilvæga sjóðs verði valdir. Í 7. gr er fjallað um svonefnda matsnefnd, en hún lýtur ekki að þessum þætti. Mér finnst það svolítill veikleiki að það sé ekki nægilega skýrt um þennan mikilvæga þátt. Síðan er annað; hver á að meta hæfi þessara stjórnarmanna? Væntanlega fer eitthvert ráðningarferli í gang í þessum efnum, geri ég ráð fyrir.
Ég hjó eftir því, ég hef a.m.k. ekki rekist á það enn þá, að ekkert er minnst á hvort stjórnarmaður þurfi að vera íslenskur ríkisborgari. Það væri gott að fá upplýsingar um það.
Síðan segir í greinargerðinni með frumvarpinu um 3. gr. að gert sé ráð fyrir því að stjórnin sé skipuð sérfræðingum sem njóta trausts. Þá spyr maður sig: Hver er það sem metur hvort viðkomandi nýtur trausts? Það þarf að vera á hreinu hvernig staðið verður að því mati.
Auk þess kom ég inn á það áðan í andsvari við hæstv. ráðherra að ekki kom fram hverjir eigi að hafa eftirlit með störfum stjórnar. Ég held að það sé nauðsynlegt að það sé til staðar og þar finnst mér vanta ákveðið gegnsæi.
Síðan minntist hæstv. ráðherra á að stjórnin myndi skila skýrslu, væntanlega, en ég gat ekki séð að krafa væri um að stjórnin skilaði skýrslu til Alþingis. Það er nokkuð sem þarf að ræða að mínum dómi.
Í greinargerðinni kemur fram að stjórnin muni hafa yfirumsjón með rekstri og fjárfestingum og kemur til með að semja við hæfan aðila um vörslu sjóðsins, rekstur og fjárfestingar, eins og hæstv. ráðherra kom inn á. Ekkert er minnst á siðferðileg gildi fjárfestingarstefnunnar að öðru leyti en því sem segir í 8. gr. og ég rakti áðan, að ekki skuli fjárfest í fjármálagjörningum sem gefnir eru út af fyrirtækjum eða stofnunum sem stunda eða eru viðriðin starfsemi sem stangast á við góða siði. Ég er á því að það verði að skýra betur því að þetta er vandasamt verk og kom hæstv. ráðherra einnig inn á það áðan. Það verða að mínum dómi að vera einhvers konar verklagsreglur hvað þetta varðar, það getur einfaldlega ekki verið matskennt meðal stjórnarmanna hvað teljast góðir siðir.
Svo minntist hæstv. ráðherra á norska olíusjóðinn, sem ég held reyndar að heiti eitthvað annað í dag, en það er nú önnur saga. Hann fjárfestir utan norska hagkerfisins. Það er mikilvægt í mínum huga að þessi Þjóðarsjóður okkar fjárfesti ekki innan lands og ef ég skildi það rétt á framsögu hæstv. ráðherra myndi Þjóðarsjóður ekki fjárfesta innan lands. En í andsvari sagði ráðherra hins vegar að það væri óheppilegt og ekki ráðlegt. Ég held að það verði að vera alveg á hreinu vegna þess að það getur haft ýmisleg áhrif ef sjóðurinn fer að fjárfesta hér innan lands ef hann er orðinn stór, og að sjálfsögðu má sjóður sem þessi alls ekki fara að fjárfesta í einhverri bólumyndun. Þannig að það er mikilvægt í mínum huga að sjóðurinn fjárfesti í útlöndum.
Þetta er að sjálfsögðu allt saman mjög vandasamt verk. Við þekkjum dæmi þess að t.d. norski olíusjóðurinn hefur tapað milljörðum á einum degi, og reyndar hefur hann líka hagnast um einhverja milljarða á fáeinum dögum. En það sýnir hversu vandasamt þetta er og mikilvægi þess að vel verði að þessu staðið öllu saman þannig að þessi mikilvægi sjóður verði landi og þjóð til sóma. Ég fagna þessu frumvarpi.
Herra forseti. Það frumvarp sem við ræðum til laga um Þjóðarsjóð er með þeim hætti að vanda þarf til verka. Ég hygg að nær allir stjórnmálaflokkar hafi á einn eða annan hátt lagt fram einhvers konar hugmyndir að þjóðarsjóði þannig að fyrir fram má búast við því að ágæt samstaða verði um stofnun sjóðsins. Þó er rétt að drepa aðeins í 1. umr. á kosti og galla, vegna þess að ekkert er gallalaust. Spurningin er hvort kostirnir yfirvinni gallana. Það má t.d. velta fyrir sér hvort ekki komi til greina í stað þess að stofna þjóðarsjóð á þann hátt sem hér er lagt til að greiða hreinlega arðinn af orkufyrirtækjunum, arðinn sem orkufyrirtækin greiða, beint til heimilanna, að í raun fái hver og einn Íslendingur beinan hlut í útgreiddum arði. Þetta á ekki síst við ef við göngum út frá því að nýting auðlindanna sé ábyrg og sjálfbær.
Við getum líka velt því fyrir okkur að við nýtum arðgreiðslu til að standa undir velferðarkerfinu og fjármögnun á innviðum velferðarkerfisins. Við getum hugsað okkur að arðgreiðslur orkufyrirtækjanna verði nýttar til að létta álögur á fyrirtæki og almenning. Þetta er umhugsunarvert þegar við höfum í huga að skattbyrði á Íslandi, ekki síst ef við tökum tillit til iðgjaldagreiðslna í lífeyrissjóði, er með því allra þyngsta sem þekkist í OECD. Ég þreytist seint á því, herra forseti, að vekja athygli á því að þyngri skattbyrði hér á landi en í helstu samkeppnislöndum dregur úr samkeppnishæfi okkar, hamlar nýsköpun, dregur úr fjárfestingum og hefur almennt neikvæð áhrif á lífskjör til framtíðar.
Nú er það svo að einn styrkleiki efnahagslífs okkar er stærð lífeyrissjóðakerfisins sem er hlutfallslega það næststærsta í heiminum, u.þ.b. 156% af landsframleiðslu, og til samanburðar er í lagi að hafa í huga að norski olíusjóðurinn, sem vitnað var til, er u.þ.b. 250% af landsframleiðslu Noregs. Það er óhætt að ganga út frá því að lífeyrissjóðirnir muni eflast, styrkjast og stækka á komandi árum og áratugum, ekki síst í ljósi þess að verið er að hækka iðgjaldagreiðslur verulega inn í sjóðina, upp í 15,5% af launum. Þeir eru auðvitað til sem halda því fram að það sé kannski orðið þannig að iðgjaldagreiðslur séu að verða of háar.
Lífeyrissjóðirnir munu þurfa að fjárfesta í ríkari mæli erlendis. Í rauninni má búast við því að hreint innflæði í sjóðina þurfi meira eða minna að leita út fyrir landsteinana að óbreyttu. Þetta er ekki síst mikilvægt til að tryggja góða eignadreifingu og draga úr áhættu þannig að við erum að tala um tugi milljarða á hverju ári. Í því sambandi er líka mikilvægt að hafa í huga, þó að það komi þessu máli ekki beint við, að við sem hér erum þurfum að fara að huga að möguleikum lífeyrissjóðanna til að taka þátt með beinum hætti í uppbyggingu samfélagslegra innviða, ekki síst með beinni aðkomu í formi eignarhalds.
Það hefur verið bent á að góð staða lífeyrissjóðanna, þrátt fyrir áföll sem þeir hafa unnið sig út úr, líkt og við flest sem betur fer, dragi að öðru óbreyttu úr þörfinni til að koma á fót þjóðarsjóði með þeim hætti sem lagt er til. Einnig má benda á að við eigum enn þá, eins og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra vék að, ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar ríkissjóðs sem nema u.þ.b. 620 milljörðum kr., um 24% af landsframleiðslu.
Í umsögn Samtaka atvinnulífsins í samráðsgátt stjórnvalda við frumvarpið er bent á að í fjármálaáætlun fyrir árin 2019–2023 sé miðað við að reiknaðir vextir ófjármagnaðra lífeyrisskuldbindinga muni hækka úr 15,2 milljörðum árið 2019 í 21,9 milljarða árið 2023. Að því leyti, þegar horft er til þess að við erum að greiða vexti af þeim ófjármögnuðu lífeyrisskuldbindingum, vaknar sú spurning hvort skynsamlegt sé að beina hugsanlegum arðgreiðslum af auðlindum, þá ekki bara arðgreiðslum orkufyrirtækja heldur getum við velt fyrir okkur hvort aðrar auðlindir eða auðlindarentur, eða hvaða orð við viljum nota, eigi ekki að fara í slíkt. — Á móti má hins vegar segja að tekist hefur að lækka lífeyrisskuldbindingar ríkisins verulega. Það hefur líka orðið gjörbreyting á skuldastöðu ríkisins og óhætt að lýsa henni sem hreinni byltingu. Heildarskuldir ríkisins nema núna u.þ.b. 850 milljörðum, rétt um 30% af landsframleiðslu, og hrein staða ríkissjóðs á grundvelli laga um opinber fjármál stefnir í að vera um 23%.
Ég vakti reyndar athygli á þeim staðreyndum fyrir nokkru í þessum ræðustól og fagnaði því, enda er ljóst að við erum hætt að ganga á lífskjör í framtíðinni og lífskjör barna okkar. Hugmyndin að baki Þjóðarsjóðnum er í sjálfu sér ekkert ósvipuð og rökin fyrir niðurgreiðslu skulda. Við ætlum að búa í haginn fyrir framtíðina, tryggja hlutdeild komandi kynslóða í nýtingu auðlinda og eiga borð fyrir báru. Við ætlum að búa til eins konar áfallavörn fyrir þjóðina. Við ætlum að koma á fót sjóði sem við teljum að geti á 15 árum, jafnvel hugsanlega skemmri tíma, orðið allt að 300 milljarðar. Það er skynsamlegt sem lagt er til í frumvarpinu, að sjóðurinn skuli ávaxta sitt pund í erlendum verðbréfum. Það er hins vegar vert að vekja athygli á því að við erum auðvitað þegar með tæki til að mæta óvæntum áföllum í formi Náttúruhamfaratryggingar Íslands, a.m.k. þegar kemur að náttúruhamförum. Þó að Þjóðarsjóðurinn kunni hugsanlega að koma þar að verki eru annars konar áföll þar sem hann getur líka komið til skjalanna. Það er hins vegar mikilvægt, eins og Náttúruhamfaratrygging Íslands bendir á í umsögn sinni í samráðsgáttinni, að gera skýran greinarmun á hlutverki Þjóðarsjóðs og Náttúruhamfaratryggingar Íslands, en heildargreiðslugeta trygginganna í einstökum stóratburði er um 73 milljarðar. Ríkið hefur auðvitað ákveðið val til um að mæta ófyrirséðu tjóni með sjóðsmyndun eða að vátryggja þá. Við þurfum að velta því fyrir okkur hvernig við samþættum annars vegar hlutverk Náttúruhamfaratryggingar Íslands og hins vegar Þjóðarsjóðsins, sem við vonum að þurfi ekki alveg að koma til en við þurfum að vera við öllu búin. Hvenær tekur Þjóðarsjóðurinn hugsanlega við af Náttúruhamfaratryggingu Íslands o.s.frv.? Það getur átt við þegar verður stórtjón á samgöngumannvirkjum sem Náttúruhamfaratrygging Íslands kemur ekki inn, en það verður þó að liggja fyrir og það er eitt af því sem þingið verður að velta fyrir sér.
Það er líka vert að vekja athygli á umsögn Samtaka iðnaðarins sem leggja áherslu á að við stofnun sjóðsins liggi fyrir skýr fjárfestingarstefna og að einnig verði að gæta jafnvægis milli söfnunar í sjóðinn og samkeppnishæfi Íslands í alþjóðlegu samhengi. Það er vert að undirstrika að það eru ákveðnar áhyggjur sem a.m.k. aðilar í atvinnulífinu hafa af því að arðsemiskrafa stjórnvalda, ríkisins, á orkuauðlindir verði svo mikil, svo há, að það leiði til umtalsverðrar hækkunar á raforkuverði og muni þar af leiðandi skerða samkeppnishæfi íslenskra fyrirtækja. Þetta er eitthvað sem við þurfum að velta fyrir okkur vegna þess að raforkuverð hefur verið eitt af því sem hefur gefið okkur samkeppnisforskot sem skiptir okkur verulega miklu máli, ekki síst í ljósi þess að aðgangur okkar að erlendum mörkuðum er kannski ekki jafn greiður og jafn ódýr og hjá mörgum öðrum þjóðum.
Stofnun Þjóðarsjóðsins er spennandi verkefni. Það er hins vegar vandasamt verkefni. Ég hafði ákveðnar efasemdir um stofnun slíks sjóðs, ekki síst þegar menn voru að velta fyrir sér að það væri skynsamlegt að vera með slíkan sjóð og nota hann í einhverja sveiflujöfnun í efnahagslífinu, sem ég vara við, en hugmyndafræðin sem hér liggur frammi virðist mér vera í flestu, ef ekki öllu, skynsamleg. Ég vara við þeim freistnivanda sem kann að liggja í framtíðinni. Sjóðurinn getur orðið öflugur og feitur og það verður freistnivandi hjá stjórnmálamönnum framtíðarinnar að breyta leikreglunum, alveg sama hversu vel við búum um hnútana, þannig að hægt verði að nota sjóðinn í öðrum tilgangi en upp var lagt með. Þess vegna er svo mikilvægt að við náum að mynda almennan skilning og almenna samstöðu, ekki bara í þingsal heldur meðal þjóðarinnar, á svipaðan hátt og Norðmönnum hefur tekist, (Forseti hringir.) þ.e. að Þjóðarsjóðurinn sé raunveruleg áfallavörn og ekki komi til greina meðal almennings að stjórnmálamenn eða aðrir sem koma að verki eftir 10, 20, 15 ár misnoti þann sjóð í pólitískum tilgangi.
Virðulegur forseti. Við fjöllum um frumvarp til laga um Þjóðarsjóð sem ég tel afar mikilvægt. Ég vil eiginlega taka undir það sem hv. þingmaður lauk máli sínu á, að ég tel einmitt að það skipti afar miklu máli að þessi sjóður verði aldrei til pólitískra afnota, ef svo má að orði komast.
Mig langar aðeins að rifja upp frá gamalli tíð. Fram kemur í ritinu Ganglera frá 1870 stutt ágrip af mannfækkun af hallærum þar sem farið er yfir þær náttúruhamfarir sem dunið hafa með reglulegu millibili á þjóðinni, eiginlega alveg síðan land byggðist. Í ritinu segir um árið 1783, með leyfi forseta:
„Eptir miðjan júní braust eldur upp úr Skaptárjökli, svo geysi mikill, að hann rann út sem straumur og eyddi 23 bæjum; heyrðust þá brestir miklir og landskjálftar; en eldur og sandrik var svo mikið að brennisteinsreykurinn barst yfir mestan hluta lands; sólin sýndist um hádag blóðrauð, og opt var svo mikil móða, að varla sást bæja á milli. Peningur varð horaður undan sumrinu og gulur á fótum og grönum, því að grasið varð gult af brennisteinsfalli. Fjallagrös og aðrar ætijurtir ónýttust, skógar eyddust og komu aldrei upp aptur, því víða mátti melja kvistina í höndum sjer ofan til miðs. Um sumarið varð heyskapur hinn bágasti, en þó verri að kostum; skáru þá flestir þriðjung til helming af pening sínum; um haustið lagði vetur að snemma, með hríðum og jarðbönnum, …“
Stuttu síðar segir, þegar ástandi landsins er lýst veturinn 1784, með leyfi forseta:
„Bjargarskortur var þá svo mikill, að allt var lagt sjer til munns er tönn festi á, svo sem horkjöt af hrossum, horn og skóbætur, og jafnvel hundar; fjell þá fjöldi manns úr hungri, megurð og annari vanheilsu, er leiddi af hallærinu.“
Svona heldur þessi hörmungarlestur áfram. Íslenskt þjóðfélag myndi ekki og lendir vonandi aldrei á slíkri vonarvöl aftur í dag, en við verðum að átta okkur á því að náttúrukraftarnir sem við búum við geta eyðilagt gríðarleg verðmæti á stuttum tíma. Við heyrum annað slagið og eiginlega of reglubundið fréttir af því að hin og þessi eldfjöll séu að búa sig undir gos. Katla, Bárðarbunga, Grímsvötn og Öræfajökull hefur verið að tútna út í meira en ár. Það hafa nefnilega stóráföll dunið á íslensku þjóðinni á 20. öld. Síldin hvarf, gosið í Heimaey, spænska veikin og það verða áföll í framtíðinni.
Það er þó kannski ánægjulegt í þessu öllu saman að við erum með vel fjármagnað lífeyriskerfi, miklu meira og betur statt lífeyriskerfi, sem fáar þjóðir geta státað af. Við erum líka að leggja til stórfé í framkvæmdir á næstu árum. Við erum að byggja nýtt sjúkrahús, við erum að leggja mikið í uppbyggingu vega og við gætum auðvitað talið lengi áfram.
Við erum líka að greiða inn á B-deild lífeyrisskuldbindinga sem þýðir að deildin fer ekki í þrot. En það er svo, eins og kemur fram í frumvarpinu, að ófyrirsjáanleiki og óviss stærðargráða slíkra stóráfalla er þess eðlis að það er nánast ómögulegt fyrir stjórnvöld að búa sig undir slíkar afleiðingar í fjárlagagerð, þ.e. þessari hefðbundnu fjárlagagerð, eða ríkisfjármálaáætlun eða almennri fjármálaáætlun til hefðbundins langs tíma, á annan hátt en kannski þann sem við erum hér að leggja af stað með, að standa fyrir slíkri sjóðsöfnun.
Í frumvarpinu segir, með leyfi forseta, að það þyki hyggilegt „að þessar nýju tekjur verði ekki nýttar eins og hver annar tekjustofn til þess að standa undir reglubundnum ríkisútgjöldum“. — Það er kannski orðið sem ég byrjaði á hér og hv. þingmaður á undan mér endaði á. — „Í stað þess verði þeim varið til að byggja upp fjárhagslegan viðbúnað í Þjóðarsjóði til að bregðast við ófyrirséðum áföllum og stuðla að efnahagslegu öryggi þjóðarinnar til framtíðar. Sömu rök eiga ekki að öllu leyti við um aðrar tekjur ríkisins af nýtingu auðlinda, svo sem nytjastofna sjávar, þar sem þær renna nú þegar í ríkissjóð og standa undir reglulegum útgjöldum.“
Ég tel að með frumvarpinu séum við svo sannarlega að búa í haginn fyrir framtíðina. Þetta frumvarp er liður í því að búa okkur undir framtíðina. Ég tel að við skuldum einfaldlega börnum og barnabörnum að þegar næsta stóráfall dynur yfir, hvort sem það er af völdum manna eða náttúruhamfara, verðum við að vera viðbúin og við munum vera viðbúin ef frumvarpið gengur eftir, því að það er alveg eins víst og himinninn er blár að á einhverjum tímapunkti, eins og ég sagði áðan, hvort sem það gerist á næstu 15 árum eða 30 árum eða 100 árum, lendum við í einhvers konar áfalli. Við þekkjum þessa sögu eins og ég rakti áðan. Það geta líka orðið efnahagsáföll eins og við munum væntanlega flestöll eftir fyrir tíu árum þegar við vorum að hefja samstarf við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eftir hrunið. Það hefði verið ágætt að eiga slíkan sjóð eins og hér er gert ráð fyrir að verði til. Þá hefði væntanlega ýmislegt verið með öðrum hætti en raun varð á.
Ég tel þetta mál mjög gott og ef forsendur standa verður búið að safna í þennan sjóð á bilinu 250–300 milljörðum eftir 20 ár. Það er tíundi hluti af landsframleiðslunni eins og hún er í dag og ef við gefum okkur að landsframleiðslan vaxi að meðaltali um 2% á þessu árabili gæti þetta orðið í kringum 5–6% af landsframleiðslunni árið 2038. En það er svo sem tíminn fyrir sér í því að ákveða hvert heppilegt hlutfall er í þessu. Aðalmálið er að hefjast handa og búa þannig um hnútana að þverpólitísk sátt ríki um að láta þennan sjóð vera nema nauðsyn krefji. Varðandi þau sjónarmið að safna þurfi upp í sjóðinn á löngum tíma til að hann hafi ekki ruðningsáhrif á gjaldeyrismarkaði held ég að það séu réttmæt sjónarmið.
Það er svo sem ágætlega um þetta búið í greinargerð frumvarpsins, en vissulega tel ég að nefndin eigi að fara yfir með hvaða hætti þetta verður gert, þ.e. hvort erlendar tekjur fari beint inn á erlenda innstæðureikninga ríkissjóðs og fari þar af leiðandi ekki í gegnum gjaldeyrisjöfnuðinn. Ljóst er að ef það á að takast að nýfjárfestingar lífeyrissjóða fari í auknum mæli í erlendar fjárfestingar, eins og við höfum talið afar æskilegt, verðum við að eiga nóg af gjaldeyri.
Sem betur fer er viðskiptajöfnuðurinn jákvæður í ár eins og síðustu ár og erlend staða þjóðarbúsins jákvæð sem nemur 13%. Það er ánægjulegt að Ísland er orðið lánveitandi í stað þess að vera lánþegi líkt og verið hefur síðustu áratugi. En það kemur líka fram svo sem í frumvarpinu að hægt er að fara aðrar leiðir ef vilji væri til þess að láta t.d. afgang safnast upp í innstæðureikningum ríkissjóðs, en þá er talið að ávöxtunin verði rýrari en ef við fjárfestum á erlendum mörkuðum. Eins og um er getið í frumvarpinu væntum við þess að við náum árangri í lækkun á skuldastöðu hins opinbera og að skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs fari að nálgast það lágmark sem talið er heppilegt fyrir virknina á fjármálamarkaði í landinu.
Það er líka ágætlega vikið að óbeinum skuldum ríkissjóðs í þessum ófjármögnuðu lífeyrisskuldbindingum vegna eftirlaunaréttinda ríkisstarfsmanna. Það gæti alveg komið til álita að nýta viðbótartekjur frá orkufyrirtækjum til að mæta þeim. En það er líka vikið að því hvaða samkomulag hefur náðst við sveitarfélögin. Ég held að það sé og hafi verið af hinu góða. Hérna er rakin ástæða þess að sjóðnum var lokað og ríkisstarfsmenn færðu sig yfir í A-deildina. Það er líka rakið að þessi aðferðafræði hafi orðið til þess að við sitjum núna uppi með tugmilljarðahalla sem hefur myndast á tryggingafræðilegri stöðu deildarinnar og svo auðvitað aldurssamsetning sjóðfélaga og ríkissjóður talinn bera bakábyrgð fyrir þeim skuldbindingum. Þess vegna er þetta samkomulag, sem tók gildi árið 2017, afar gott. Eins og ég segi, ég held að okkur gangi ágætlega þar.
Frú forseti. Ég held að tilvist þessa sjóðs, þegar hann verður kominn á koppinn, komi líka til með að hafa jákvæð áhrif á íslenskt atvinnulíf. Það er þannig að myndarlegir varasjóðir skjóta sterkari stoðum undir lánshæfismat ríkissjóðs og auðvitað vonumst við til þess að lánshæfismatið smitist yfir á sveitarfélögin líka. Ég tek undir með þeim sem hafa talað á undan mér að þetta er mjög gott mál, það er bæði spennandi en það er líka vandasamt. Það á eflaust eftir að taka breytingum í nefndarmeðförum.
Ég tel það vera í anda félagshyggjunnar að á fyrstu árum sjóðsins verði hluta af fjármunum sem ættu annars að renna í sjóðinn varið í það mikla verkefni sem fyrir liggur í uppbyggingu hjúkrunarrýma um allt land og það er í þágu þeirrar kynslóðar sem hefur lagt grunninn að okkar hagsæld í dag.
Svo er auðvitað stóra málið verðmætasköpun framtíðarinnar sem felst m.a. í nýsköpun og hugviti og það er að mínu mati ótæmanleg auðlind. Ég sagði áðan að ég gerði ráð fyrir því að ef hagkerfið yxi um 2% á ári næstu 20 ár yrði þjóðarframleiðslan um helmingi meiri en hún er í dag. Það þýðir þá væntanlega að við þurfum með nýsköpun að finna þessi verðmæti og framleiða þau.
Ég ætla ekki að hafa mál mitt miklu lengra, ég tel að við séum að stíga skref til góðs, sem kemur til með að skipta okkur miklu máli. Þó að safnist hægar í sjóðinn en ella til að byrja með eru þau verkefni svo brýn sem við stöndum frammi fyrir og við hyggjumst nýta auðlindarentuna að hluta til í, en til framtíðar litið held ég að okkur beri skylda til — eða ég er sannfærð um að okkur ber skylda til þess að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu hans og ágæta yfirferð á málinu. Ég tel að hér sé um afar gott mál að ræða og gleðilegt að við skulum vera að stíga þetta skref, eins og nokkrir hv. þingmenn hafa komið inn á, einmitt á þessum tímamótum í sögu þjóðarinnar þegar rétt 100 ár eru liðin frá fullveldi Íslands.
Við erum að mínu viti með þessu að skjóta styrkari stoðum undir samfélagið, efla þá getu sem við höfum sem samfélag til að taka áföllum en líka til að, eins og kemur fram í bráðabirgðaákvæðunum, byggja upp til skamms tíma úrræði eins og til að mynda hjúkrunarheimili. Eins og hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir kom inn á áðan fer mjög vel á því að hafa í upphafi tilurðar þessa sjóðs það sem við getum kallað hliðarverkefni, þ.e. að veita tiltekinn hluta fjármuna í uppbyggingu hjúkrunarrýma, einmitt vegna þess að sá grunnur sem við stöndum á er byggður upp af þeim kynslóðum sem fyrstar munu nota þessi hjúkrunarheimili. Þess vegna er sérstaklega gleðilegt að þessi leið skuli vera farin og þessi jákvæða táknræna aðgerð mjög gleðileg hvað það varðar.
Ég velti því fyrir mér hvort tekjustofnar sjóðsins ættu mögulega að vera fleiri en getið er í frumvarpinu sjálfu. Raunar kom hæstv. ráðherra inn á það lítillega áðan að auðvitað gæti það komið til, eignasala eða eitthvað þess háttar gæti komið til, en ég velti því fyrir mér hvort arðgreiðslur frá fleiri orkufyrirtækjum en eingöngu Landsvirkjun eða arðgreiðslur frá fleiri auðlindum gætu komið til greina, til að mynda af réttinum til að stunda fiskeldi, og þannig mætti lengi telja. Ef við lítum á landið okkar í heild sem auðlind, að það að einhver skuli vilja kaupa sig hingað til lands til að borga fyrir að skoða landið okkar sé önnur auðlind, þá getur maður alveg ímyndað sér að það gæti verið á einhverjum tímapunkti tekjulind fyrir svona sjóð. Ég velti fyrir mér hvort einhvers konar skýrari ákvæði eða aðeins meiri umbúnaður í nefndaráliti við 5. gr. gæti átt þar við.
Það kemur fram í greinargerð frumvarpsins að það muni taka 20 ár eða svo að byggja sjóðinn upp í 250–300 milljarða. Ég velti aðeins fyrir mér hvort það væri ástæða til að setja hreinlega ákvæði í lögin um tiltekin stærðarmörk sem sjóðurinn gæti komist upp í áður en væri farið að úthluta úr honum eða nota fjármuni úr honum til annarra verkefna en þeirra sem tengjast beint áföllum. Nú skulum við vona að áföll á næstu árum leiði ekki til þess að við þurfum að grípa til sjóðsins í hvelli. Áföll eins og getið er um í frumvarpinu verða ekkert endilega á 20–30 ára fresti heldur jafnvel sjaldnar og þá á einhverjum tímapunkti gætu vaknað þær spurningar, eins og til að mynda hefur gerst í Noregi, hvort tímabært sé eða skynsamlegt að grípa til fjármuna úr sjóðnum. Þetta munum við væntanlega ræða í hv. efnahags- og viðskiptanefnd.
Ég vil líka aðeins snerta á því sem aðrir ræðumenn hafa komið inn á í sambandi við fjárfestingarstefnu sjóðsins. Ég tel að það sé a.m.k. mikilvægt að taka einn snúning á því í nefndinni hvort það eigi að vera einhvers konar umhverfisvinkill á fjárfestingarstefnu sjóðsins. Það væri táknrænt í því tilliti að grunnurinn að arðgreiðslum í sjóðinn er einmitt byggður á umhverfisvænni vinnslu orku, a.m.k. stórt séð. Það væri t.d. vangavelta að setja inn einhver skilmerki um framleiðsluvörur þeirra fyrirtækja eða verðbréfa sem fjárfest er í.
Ég lít þannig á að þessi sjóður verði enn eitt akkerið sem við höfum í íslensku samfélagi og verði býsna mikilvægt sem slíkt. Ég hef áður nefnt það í ræðu að lífeyrissjóðakerfið í landinu er annað mjög mikilsvert og stórt akkeri sem skiptir okkur mjög miklu máli og hefur gert í gegnum tíðina. Ég held að í samfélagslegu tilliti sé einmitt mjög mikilvægt að reka niður svona hæla til að tryggja að við getum staðist áföll og brugðist við óvæntum viðburðum.
Ég ætla ekki að hafa orð mín fleiri. Ég ætla reyndar að nefna varðandi stjórn sjóðsins, raunar var aðeins komið inn á það hér áðan líka, að það kann að vera að hún ætti að hafa breiðari skírskotun en þarna er. Það er væntanlega eitthvað sem hv. nefnd tekur fyrir. En ég hlakka til að vinna að þessu þarfa verkefni í efnahags- og viðskiptanefnd og fagna því enn og aftur að þetta mál sé hér fram komið.
Frú forseti. Ég ætla að bæta við nokkrum orðum í umræðum um Þjóðarsjóð og taka í raun og veru undir orð margra hv. þingmanna sem hér hafa talað, einkum um hlutverk Þjóðarsjóðsins. Það er auðvitað freistandi að búa til einhvers konar sparibauk í alls konar málaflokka til að seilast í þegar þörf er á, einkanlega í samfélagslega uppbyggingu eða jafnvel menningarlega uppbyggingu eða nýsköpun og annað. Ég ætla alls ekki að fortaka fyrir það, svo fjarri því. Eins vil ég að minnast á, eins og aðrir hv. þingmenn hafa gert, að það eru önnur auðlindagjöld sem gætu komið til greina, önnur en af orkuframleiðslu til að byrja með. En mínar áhyggjur snúast fyrst og fremst, eins og líka hefur komið fram, um áföll af völdum náttúruvár. Það er margs konar náttúruvá sem við getum þurft að horfast í augu við. Þá er ég að meina af þeirri stærðargráðu að hvorki ofanflóðasjóður né Náttúruhamfaratrygging Íslands, annar eða hvortveggja, geti almennilega annað. Það er búið að nefna eldgos og jökulhlaup sem hv. þm. Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir ræddi rétt á undan mér og þarf ekkert að fjölyrða um það nema kannski að því leytinu til að nú eru eldfjöll að byggja sig upp til einhverra átaka af hugsanlegri stærðargráðu sem við höfum ekki séð lengi. Það mun auðvitað gerast í sögunni og hefur gerst í sögunni á nokkurra alda fresti að hér hafa orðið mjög alvarleg eldgos sem hafa haft í för með sér fjárhagstjón af stærðargráðu sem við höfum ekki séð áður.
Ég ætla ekki að fjölyrða frekar um það en bendi líka á jarðskjálftann sem getur orðið á tveimur svæðum, annars vegar á Suðurlandsundirlendinu og hins vegar úti fyrir Norðausturlandi og jafnvel inni á Norðausturlandi. Þá er ég að tala um skjálfta af stærðargráðunni 6,5 í yfir 7 að stærð, sem er nokkuð sem við höfum ekki séð — jú, 6,5 í Suðurlandsskjálftanum síðast. Venjan er sú að þeir eru þá til friðs í nokkuð langan tíma en sagan kennir okkur að það verða jarðhræringar af stærðargráðunni yfir 7 á báðum svæðunum.
Ég ætla líka að bæta við að aukist gæti tíðni alvarlegustu stórflóða og stórviðra sem geta orðið á Íslandi með tilheyrandi tjóni á strandsvæðum, sem við höfum heldur ekki séð um alllanga hríð en líkur eru á með loftslagsbreytingum að geti aukist. Við erum að tala um náttúruvá eða áföll sem koma á áratuga eða alda fresti af mismunandi orsökum, þannig að ef við horfum til næstu fáeinna áratuga getum við þurft að bæta fyrir slíkt í samfélagi okkar.
Að því sögðu má líka benda á efnahagsleg áföll af ýmsum toga sem geta dunið yfir býsna óvænt. Það voru ekki margir sem bjuggust við hruninu stóra, þó að ég sé ekki að gera því skóna að það sé handan við hornið, svo langt því frá, en það er a.m.k. gleðilegt og framsýnt að hefjast handa við uppbyggingu Þjóðarsjóðs, fyrsta kastið, sem ég hef viljað leggja áherslu á með því að koma í pontu, sem varasjóð vegna náttúruhamfara en síðar er hægt að nota hann til ýmissa annarra brýnna verkefna þegar honum hefur vaxið almennilega fiskur um hrygg.
Ég vil ljúka máli mínu á því að hvetja til þess að sett sé einhvers konar markmið um það hversu há upphæð skuli vera þangað komin áður en við förum að hugsa fyrir öðru en áföllunum. Eins og landið liggur núna og eins og ríkissjóður er spenntur vegna úrbóta í innviðauppbyggingu og svo mörgu öðru og vegna þess að aðrir sjóðir eru þó ekki stærri en þeir eru er brýnt að muna eftir nákvæmlega því og horfa þá til þess hvaða marki við ættum að ná til að geta farið að nota fé úr þessum sjóði í annað en varnir gegn náttúruvá.
Hæstv. forseti. Við erum að ræða frumvarp til laga um Þjóðarsjóð og það er jákvætt að við erum í þeirri stöðu að ræða mál af því tagi. Ég get í meginatriðum verið sammála þeirri grundvallarhugmyndafræði sem liggur að baki slíkum sjóði og birtist í 1. gr. frumvarpsins, markmiðsgreininni, um að treysta fjárhagslegan styrk ríkissjóðs til að mæta afleiðingum af meiri háttar ófyrirséðum áföllum sem þjóðarbúið gæti orðið fyrir. Um leið má auðvitað gera það með margvíslegum hætti og hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra velti upp slíkum spurningum í framsögu sinni. Við getum haldið áfram að greiða niður skuldir, eins og við höfum verið að gera undanfarin misseri, og sparað okkur þannig vexti og nýtt þann sparnað í innviðauppbyggingu sem mikil þörf er á. Svo er alltaf spurning hvort ríkissjóður eigi að vera skuldlaus eða hvar mörkin liggja, hversu mikil skuldsetning er æskileg. Ég geri ráð fyrir að hagfræðingar verði ekki allir á einu máli í þeim efnum. Við getum svo sannarlega haldið áfram að byggja upp samfélagslega innviði, sérstaklega þar sem við erum víða komin í skuld. Ég nefni samgöngur og ég nefni félagslega innviði eins og mál þróast þar varðandi örorkulífeyri, ellilífeyri, hjúkrunarheimili sem eru hluti af útvíkkun markmiða með sjóðnum og kemur fram í stjórnarsáttmála. Við getum, eins og hæstv. ráðherra kom inn á, greitt hraðar inn á ófjármagnaðar lífeyrisskuldbindingar, en þær voru um 619 milljarðar í árslok 2017 og áætlað er að þær fari í 645 milljarða 2019. Við gætum forinngreitt á þær í meira mæli. Það styrkir ríkissjóð, eins og mun gerast með slíkum sjóði með öðrum hætti. Í því felst ávöxtun.
Nú er áætlað að setja 7 milljarða í forinngreiðslu á ári samkvæmt ríkisfjármálaáætlun og er það sjálfstætt markmið í fjárlögum ársins 2019. Það er vel. Það má segja að árlegur fjármagnskostnaður, vextir á ófjármagnaðri skuldbindingu geti numið árlega 12–13 milljörðum. Við getum nýtt slíka peninga. Maður veltir fyrir sér hvort ekki mætti greiða það hraðar niður, ná ávöxtuninni fram með þeim hætti, spara sér eitthvað af þessum 12–13 milljörðum þannig.
Á því er tekið í greinargerð með frumvarpinu á bls. 16 með ágætisrökum. Ég ætla, virðulegur forseti, að grípa þar niður. Í umsögnum Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins er vikið til stöðu lífeyrisskuldbindinga ríkisins og því er velt upp hvort fjármunum væri betur varið til uppgreiðslu þeirra.
„Jafnframt er bent á möguleg ruðningsáhrif sjóðsins á gjaldeyrismarkaði. Af hálfu síðarnefnda hagsmunaaðilans er auk þess lagt til að fremur verði ráðist í lækkun skatta vegna þess svigrúms sem aukinn arður af orkuauðlindum kann að skapa. Þessu er til að svara, í fyrsta lagi, að ríkisábyrgð á skuldbindingum A-deildar LSR var aflétt eftir uppgjör á deildinni árið 2016. Með ráðstöfunum af hálfu ríkissjóðs, sem þegar eru hafnar og m.a. er gerð grein fyrir í fjármálaáætlun, er gert ráð fyrir að B-deild LSR geti staðið skil á skuldbindingum sínum að fullu. Í öðru lagi, varðandi áhrif á gjaldeyrismarkað, ber að líta til þess að þeim auknu tekjum sem um ræðir hefði að öðrum kosti mögulega verið varið í að greiða skuldir orkuvinnslufyrirtækja, sem eru að miklu leyti í erlendri mynt.“
Þarna speglast að hluta til svar eða rök við þessum spurningum og því víðtæka hlutverki sem slíkum sjóði er ætlað. Þeir eru til margir og mismunandi. Hér hefur mikið verið vísað til norska olíusjóðsins.
Í stjórnarsáttmála hæstv. ríkisstjórnar eru áform uppi um stofnun þessa sjóðs og við sjáum það með frumvarpinu þar sem Þjóðarsjóður verður stofnaður utan um arð af auðlindum landsins.
Þar kemur jafnframt fram að sjóðurinn verði að hluta til nýttur til átaks í uppbyggingu hjúkrunarrýma fyrir elstu kynslóðina. Ég er hlynntur því, ég held að við eigum að horfa til félagslegra innviða þar sem við erum núna í skuld. Þannig liggur ljóst fyrir að verkefni sjóðsins eru farin að teygja sig umfram þá grundvallarhugmyndafræði og þann tilgang að styrkja ríkissjóð. Það má velta því fyrir sér hvort það þurfi sérstakan sjóð með tilheyrandi regluverki, umsýslu og kröfu um að ávaxta fé, sérstaka fjárfestingarstefnu og sérstaka matsnefnd, eins og kemur fram í sérstökum lagagreinum í frumvarpinu, sem metur það hvort og hvenær ástæða sé til að ráðstafa fé úr sjóðnum, eins og tekið er fram í 7. gr. í frumvarpinu. Þar er kveðið á um matsnefnd, það skuli vera þrír nefndarmenn í matsnefnd samkvæmt tilnefningu Alþingis, þannig að við erum með sérstaka nefnd sem metur aðstæður sem koma upp og hvort megi ráðstafa fé úr sjóðnum.
Því vakna margar spurningar um hvenær ástæða sé til að ráðstafa fé úr slíkum sjóði í stað þess að fara í verkefnin og styrkja ríkissjóð með beinum hætti, eins og fram hefur komið hér og þessar spurningar vekja upp. Hv. þm. Óli Björn Kárason nefndi að hægt væri að greiða þetta bara beint út til eigenda auðlindanna, heimilanna, eða lækka skatta. Það hefur önnur áhrif, afleidd, til að mynda að efla samkeppnishæfni o.s.frv.
Varðandi framsetningu og tengingu að öðru leyti við skuldir vísa ég til greinargerðar á bls. 10 þar sem segir að Þjóðarsjóðurinn verði færður í efnahagsreikning ríkissjóðs og hafi þannig áhrif á fjárhagslega stöðu. Þar er gert ráð fyrir að hann sé metinn til frádráttar skuldum við mat á skuldareglu samkvæmt 7. gr. laga um opinber fjármál.
Það er mikilvægt þegar kemur að því að meta styrk og traust á íslensku hagkerfi og þar með eflist til að mynda lánshæfi ríkissjóðs. Þótt á ólíkan hátt sé hefur það sömu áhrif og að greiða niður skuldir þegar við metum þetta út frá sjálfbærni og stöðugleika opinberra fjármála sem styrkist þar með.
Þá er mikilvægt að huga að því hlutverki sem slíkur sjóður getur vissulega gegnt í hagstjórn í því augnamiði að byggja upp og viðhalda stöðugleika. Slíkur sjóður getur með réttum umbúnaði unnið með peningamálastefnu, ríkisfjármálastefnu og haft áhrif á gengissveiflur og þannig verið stjórntæki til að veita öryggi og stöðugleika í efnahagsmálum. Í grein sem Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, ritaði fyrr á þessu ári er fyrirsögnin Stöðugleikasjóður auki samkeppnishæfni Íslands. Í greininni vísar Sigurður í skýrslu sem gefin er út á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um þjóðarsjóði, stjórnarhætti og stýringu eigna þeirra og segir að tilgangur slíkra sjóða geti verið nokkrir og nefnir þá úr skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sem geta verið stöðugleikasjóðir, eins og ég kom inn á, sem hafa það markmið að einangra ríkisfjármál og hagkerfi frá sveiflum í hrávöruverði og ytri áföllum. Þetta kemur jafnframt fram í greinargerð með frumvarpinu. Það geta verið söfnunarsjóðir sem hafa það hlutverk að varðveita fjármuni fyrir komandi kynslóðir. Verðmæti af óendurnýjanlegum auðlindum eru þannig fjárfest í verðbréfum. Það er ekkert ósvipað og norski sjóðurinn, en hann er hér títtnefndur og kemur fram í greinargerð og var horft til varðandi umbúnað, regluverk og skipulag á þeim sjóði sem við erum að fyrirhuga að ræða í þessu frumvarpi, þar til, af því að við erum að tala um að byggja upp þennan sjóð, hann verður um 10% af heildarverðmætasköpuninni í landinu á einu ári. Þar nýtir norski sjóðurinn um 3% af sjóðnum í norsku fjárlögunum 2018 sem eru um 18% af heildarútgjöldum fjárlaga þessa árs.
Þetta geta verið þróunarsjóðir sem eru settir á laggirnar til að fjárfesta í innviðum. Þá hafa ríki stofnað sjóði til að eiga fyrir áföllnum lífeyrisskuldbindingum ríkissjóðs. Eins og ég vék að áðan er það alveg gild spurning að fara í gegnum. Varasjóðir sem taldir eru til gjaldeyrisvaraforða fjárfesta til lengri tíma með það fyrir augum að draga úr mun innlendra og erlendra vaxta þannig að það er afar mikilvægt að við skilgreinum mjög nákvæmlega hlutverk sjóðsins. Það er gert og það er vel.
Hæstv. ráðherra fór yfir að íslenski Þjóðarsjóðurinn er hugsaður sem áfallavörn fyrir þjóðina, t.d. ef upp kemur verulegur afkomubrestur eða óhjákvæmilegt er að grípa til varna gegn áföllum, náttúruhamförum eða annars konar ógnum. Í greinargerð með frumvarpinu eru ólík módel skoðuð og ágætlega farið yfir það sem hæstv. ráðherra gerði í framsögu sinni, þannig að ég ætla ekki að fara frekar í það.
Ég vil minnast á það sem kemur fram á bls. 9 í greinargerðinni. Þar er vísað í lög um opinber fjármál og talað um hlutverk varasjóðs sem skuli vera a.m.k. 1% af heildarfjárheimildum og ætlað til að mæta, af því að við erum að horfa á sjóði sem við höfum til að mæta einhvers konar frávikum í viðfangi ríkisfjármála á hverju ári, frávikum frá launa- og verðlagsforsendum fjárlaga, gengisáhrifum og ýmsum tilfallandi, ófyrirséðum útgjaldamálum og umframgjöldum og getur yfirleitt ekki nýst nema í mjög takmörkuðum mæli fyrir ytri áföll þegar áhrif þeirra eru ekki umtalsverð. Fjárhagslegur viðbúnaður er því ekki þannig séð til staðar til að mæta stóráföllum af öðrum völdum en náttúruhamförum og styður þannig við þau áform.
Ég er alveg á lokametrunum í ræðu minni og vil ítreka að afar mikilvægt er að um slíkan sjóð náist mikil samstaða, umfram mörg önnur mál, myndi ég telja, sem koma til umfjöllunar og umræðu í þinginu, og að umbúnaður sjóðsins sé með þeim hætti að lifi af pólitíska strauma og ríkisstjórnir til langrar framtíðar og sinni þannig ætluðu hlutverki sínu. Fleiri hv. þingmenn hafa komið inn á það hér og mikilvægt að slík samstaða myndist. Ég held að eitt af því sem liggi fyrir hv. efnahags- og viðskiptanefnd sé að stilla upp öllum spurningum, mögulegum og ómögulegum, í kringum umbúnað þessa sjóðs, tilgang og hlutverk og hvernig við tryggjum þetta og þannig er hægt að ná samstöðu um slíkan sjóð sem ég met lykilatriði þegar við klárum þetta mál.
Virðulegur forseti. Þetta er stórt og ekki einhlítt mál og um leið afar mikilvægt og getur verið mjög jákvætt. Ég ítreka í lokin að nauðsynlegt er að rýna vel til að sjóðurinn nái tilgangi sínum og hlutverkið sé afar skýrt og skilgreint þegar við samþykkjum þetta mál. Ég árétta það sem ég sagði í upphafi, það eitt og sér að við skulum vera á þessum tímapunkti í þjóðfélagi okkar að ræða slíkan sjóð inn í framtíðina fyrir komandi kynslóðir er afar mikilvægt.
Frú forseti. Mér var kennt það í æsku að ég ætti að leggja til hliðar ef ég ætti eitthvað afgangs. Það borgaði sig. Okkur var kennt að það væri dyggð að spara. Að því leyti til er þetta dyggðum prýtt frumvarp til laga um Þjóðarsjóð sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra leggur fram í kvöld.
Ég get ekki annað en óskað honum og Sjálfstæðisflokknum til hamingju með að leggja það fram. Í efni frumvarpsins felst mikil yfirlýsing og ég fæ ekki betur séð en að ljósin hafi verið kveikt og að menn komi nú auga á hin skynsamlegu og góðu markmið sem við jafnaðarmenn höfum talað svo lengi fyrir, að auðlindirnar koma okkur við, okkur landsmönnum öllum, þetta sé eign okkar landsmanna sem við eigum að hafa eitthvað með að gera og eiga hlutdeild að.
Ég el þá von í brjósti að þetta sé upphafið að breyttum tímum og að við fetum okkur lengra inn á þá braut að nýta saman það sem landið gefur okkur, auðlindirnar, og getum byggt upp með þeim hætti þjónustu af ýmsu tagi og tekið við áföllum sem verða. Ég hef ekki haft tækifæri til að lesa mjög vandlega í gegnum frumvarpið og ætla ekki að fara efnislega í það en auðvitað eru þarna álitamál og mörgum spurningum ósvarað. Ég geri ráð fyrir því að í umræðunni og í umfjöllun þingsins muni álitamálum verða eytt en hæstv. ráðherra hefur auðvitað gert okkur grein fyrir ýmsum þáttum, hvenær Þjóðarsjóður komi til bjargar áföllum og hvenær ekki og að þarna geti ef vel tekst til safnast dágóður sjóður.
Þetta er kannski ekki í þeim anda sem við jafnaðarmenn höfum lagt til og talað fyrir en allt um það getum við ekki ætlast til þess að Sjálfstæðisflokkurinn kokgleypi hugmyndafræði okkar jafnaðarmanna í einum bita. Við trúum því að hugmyndir okkar fái samt að njóta sín á dómsins æðsta degi, skulum við segja.
Í 5. gr. segir, með leyfi forseta:
„Veita skal framlög til Þjóðarsjóðs sem eru jafnhá öllum tekjum sem ríkissjóður hefur haft af arðgreiðslum, leigutekjum og öðrum tekjum vegna nýtingar orkuauðlinda á forræði ríkisins frá orkufyrirtækjum …“
Þetta segir sína sögu. Þarna er álitamunur. Við höfum lagt til ákveðið hlutfall af veltu eða tekjum raforkufyrirtækjanna af hverri kílóvattstund, að greitt sé lítið gjald fyrir afnotin af auðlindinni, svipað því og gert er víða annars staðar. Noregur var nefndur til sögunnar og olíusjóðurinn mikli. Þar greiða menn gjald sem er trúlega eitthvert hlutfall af veltunni. Því má velta fyrir sér og það mun auðvitað þróast í umræðunni. Þarna er kannski fyrst og fremst um opinber orkufyrirtæki að ræða. Hvað um orkufyrirtæki sem ekki eru í opinberri eigu, eru einkahlutafélög eða hlutafélög í eigu bæði innlendra og erlendra fyrirtækja?
Frú forseti. Það er alkunna að við höfum talað fyrir auðlindasjóði og að við eigum að njóta auðlindarentunnar sameiginlega. Þá hrökkva talsmenn úr flokki hæstv. ráðherra til baka og segja að ekki megi skattleggja of mikið, það virki letjandi. Við í okkar góða jafnaðarmannaflokki erum ekki talsmenn neinna ofurskatta. Við gerum okkur hins vegar grein fyrir að margs þarf búið við. Við viljum öfluga velferðarþjónustu og það sárvantar peninga inn í þann flokk, t.d. í dag, og að nýgenginni umræðunni um fjárlagafrumvarp liggur fyrir að það þarf að stoppa upp í ýmsa holuna.
Hæstv. ráðherra nefndi í ræðu sinni áðan að skattar á Íslandi væru frekar háir á heimsvísu. Af hverju eru menn að tala um heimsvísu? Af hverju takmörkum við ekki umræðuna við Norðurlönd? Við viljum vera velferðarsamfélag á skandinavíska vísu þar sem ríkir mest velferð á heimsvísu og eigum að miða okkur við það. Þegar upp er staðið erum við ekki með hærri skatta en gerist og gengur annars staðar á Norðurlöndum.
Ég ætla ekki að draga þetta á langinn en leyfi mér að endurtaka að ég tel að þetta sé hamingjudagur, sérstaklega fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Í þessu er fólgin mikilvæg viðurkenning og við skulum horfa fram á veginn og hugsa til þess að eignast auðlindasjóð sem getur nýst okkur mjög vel. Þar hugsum við til heita vatnsins og við skulum hugsa til kalda vatnsins og verðmæta sem finnast í jörðu og ég tala nú ekki um fiskinn í sjónum sem við höfum mest fjallað um, en það eru mörg önnur verðmæti sem við eigum að ræða sem sameiginlega eign okkar, nú síðast kannski umræðuna um fiskeldið. Þar erum við komin af stað í lagaumhverfi sem er mjög losaralegt. Þar þurfum við að hafa hreina og skýra auðlindastefnu sem kemur okkur öllum til góða og við þurfum að skapa um það sátt.
Það verður fróðlegt og ánægjulegt að fjalla um þetta áfram í þinginu. Þetta frumvarp ber í sér fegurð sem við skulum meta og vonandi að það verði okkur til farsældar og að við þurfum ekki að nýta þetta í stórum áföllum sem eru til skaða fyrir landsmenn heldur á einhvern uppbyggilegan hátt.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka almennt fyrir mjög jákvæð viðbrögð við málinu og góðar undirtektir við þessari hugmynd, sem ég þreytist ekki á að segja að byggir í raun og veru alfarið á samstöðu í þingi og til lengri framtíðar vegna þess að til lítils er að leggja af stað í þetta mikla langferð sem sjóðsöfnun sem þessi er ef það er gert í átökum og menn eru ósammála um grundvallaratriði þannig að ólíklegt er að sáttin eða meirihlutaviljinn haldist til lengri tíma. Það er mjög mikils virði og sömuleiðis skiptir máli að þinglega meðferðin sé vönduð og að við horfum til þeirra ólíku sjónarmiða sem reynt getur á á langri vegferð. Hér hefur verið komið inn á þó nokkuð mörg atriði, t.d. hefur verið farið inn á ábyrgðina sem samkvæmt lögum um Stjórnarráðið hvílir hjá viðkomandi fagráðherra, en ég vek líka athygli á 12. gr. frumvarpsins sem fjallar um það að gerður er ársreikningur fyrir hvert reikningsár og hann endurskoðaður af ríkisendurskoðanda.
Síðan er gert ráð fyrir samkvæmt 2. mgr. að ráðherra fái skýrslu eigi sjaldnar en ársfjórðungslega, sem sagt fjórum sinnum á ári. Þær eru gerðar opinberar og ráðherra gerir Alþingi grein fyrir starfsemi sjóðsins á hverju ári. Það er sjálfsagt að það komi fram að því var velt upp hvort ástæða væri til að ráðherra gerði Alþingi grein fyrir stöðu sjóðsins oftar, en ég tel að árleg, skrifleg greinargerð til þingsins til viðbótar við opinbera birtingu ársfjórðungsskýrslna sé algerlega fullnægjandi og engin ástæða til að ætla annað — ef þingið hefur ástæðu til að kalla eftir frekari upplýsingagjöf verður við því brugðist.
Síðan hefur verið rætt nokkuð í kvöld um stjórn sjóðsins. Ég hef sagt áður í andsvari í kvöld að sjálfsagt er að ræða það frekar og er þá leiðbeiningu að finna í 3. gr. frumvarpsins. Þarna geta togast á sjónarmið um að hve miklu leyti við getum gengið út frá því að þingið muni velja hæfa einstaklinga, svo og forsætisráðherra og fjármálaráðherra, eða að hvaða marki þeir þurfi mjög skýra leiðbeiningu í lögum. Ég hef almennt verið þeirrar skoðunar að það eigi að vera hægt að ganga út frá því að forsætisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, eða sjálft þingið, muni aldrei tilnefna þá einstaklinga sem ekki séu almennt til þess fallnir að geta sinnt hlutverkinu. Hér er farin sú leið að nota tiltölulega almennt orðalag; sérfræðiþekking og starfsreynsla, sérstaklega á fjármálamarkaði, hagfræði o.s.frv., en þetta er sjálfsagt að ræða.
Einnig hefur verið komið inn á það í kvöld að það þyrfti að vera algjörlega á hreinu hvort sjóðnum væri heimilt að fjárfesta á Íslandi. Ég hafði látið þau orð falla í andsvari að óheppilegt væri að sjóðurinn fjárfesti innan lands, en ég átti við með þeim orðum að ástæða er fyrir því að honum er bannað að fjárfesta innan lands. Það er vegna þess að það er óheppilegt. Ég var ekki að gefa í skyn með þeim orðum að sjóðurinn hefði heimildir til þess, enda er það mjög skýrt afmarkað í 11. gr. frumvarpsins, eins og þar segir, með leyfi forseta, í 1. mgr.:
„Óheimilt er að fjárfesta í verðbréfum eða öðrum fjármálagjörningum útgefnum í íslenskum krónum eða útgefnum af aðilum með lögheimili á Íslandi eða í eigu erlends aðila, sem íslenskir aðilar eiga meira en tvo hundraðshluta í.“
Það eru mjög strangar reglur hvað þetta snertir og alveg ljóst að verið er að beina fjárfestingum út úr landinu. Þetta leyfi ég mér að láta duga sem samantekt á nokkrum atriðum sem snerta efnisatriði frumvarpsins.
Ég ætla að leyfa mér að fara örfáum orðum um almenn atriði, t.d. um þá tegund sjóðs sem við erum að leggja drög að. Það er rétt sem hv. þm. Guðjón Brjánsson kom inn á, að flogið hafa fyrir ýmiss konar hugmyndir að sjóðum, m.a. auðlindasjóðum, sjóðum sem myndu taka við og jafnvel deila aftur út auðlindarentu af einhverju tagi, gæti verið vegna fiskveiða eða annarrar auðlindanýtingar. Ég myndi segja að sá væri munurinn á slíkum sjóðum og þeim sem við erum að ræða um hér að við erum í fyrsta lagi að afmarka tekjuuppsprettu sjóðsins við tiltölulega þröngt svið sem er orkuauðlindirnar og með því að marka þá stefnu í þessum lögum að við erum ekki að leggja upp með að nýting annarra auðlinda renni til sjóðsins, eins og t.d. fiskveiðiauðlindarinnar. En hitt skiptir þó meiru að við erum fyrst og fremst að tala um sjóðsöfnun á meðan oft hafa komið fyrir hugmyndir um eins konar millifærslusjóði sem myndu þá safna afrakstri af nýtingu margs konar auðlinda en jafnharðan deila út til ákveðinna eyrnamerktra verkefna. Það er töluvert mikill munur á þeirri hugmyndafræði og þeirri sem við erum hér að nefna og leggja til.
Mig langar til að nefna sérstaklega ábendingar frá hv. þm. Ara Trausta Guðmundssyni sem rakti það hversu mörg dæmi sagan geymir um alvarlegar náttúruhamfarir sem geta birst okkur óvænt en þó reglulega, a.m.k. í sögulegu tilliti, og hversu umfangsmiklar þær geta verið og að af þeim sökum eigi menn að fara varlega í að gera ráð fyrir stórum útgreiðslum úr sjóðnum, a.m.k. meðan hann hefur ekki náð tiltekinni stærð, til annarra verkefna en þeirra sem tengjast slíkum náttúruhamförum. Ég held að þetta sé mjög góð ábending og ég vil beina því til nefndarinnar að taka þetta til skoðunar, þ.e. að mögulega á meðan við höfum ekki safnað upp getu til að hafa lágmarksviðbúnað vegna slíkra þátta gæti verið óráðlegt að ráðstafa hálfum sjóðnum til áfalla annarra tegunda, jafnvel þótt það gæti þýtt einhverja skuldasöfnun fyrir ríkissjóð. Þarna getur verið mjög vandasamt að draga mörkin vegna þess að grunnuppleggið í lögunum sem hérna er verið að smíða er að sjálfsögðu það að aldrei eigi að geta komið til útgreiðslu úr sjóðnum nema við höfum lent í meiri háttar áföllum. Að því leytinu til getur reynst nauðsynlegt að hafa hreinar línur og segja: Það þarf að vera eitthvað mjög stórt, eitthvað mjög alvarlegt, sem veldur því að ef við getum ekki stuðst við sjóðinn, þá tryggingu, þann viðbúnað sem hann veitir, lendum við í skertum lífskjörum eða í því að skuldsetja okkur til langrar framtíðar og velta vandanum á undan okkur. Það geta verið rök með því að hafa þær línur þannig skýrar. En eftir því sem skilin verða óljósari á milli áfalla sem tengjast náttúruhamförum, algerlega óviðráðanlegum ytri atburðum, og síðan atburða sem mögulega verða af mannavöldum — það geta verið hlutir, ég meina: Hvað á maður að láta sér detta í hug í ræðustól? Það strandar kjarnorkukafbátur á fiskimiðunum. Það geta orðið hroðaleg flugslys. Netárásir hafa verið nefndar, slíkir hlutir sem ekki verða leiddir beint til náttúruhamfara eða einhverra umbrota í iðrum jarðar. Slíkir hlutir geta líka haft mjög alvarlegar afleiðingar og þess vegna er alls ekki verið að girða fyrir að þeir leiði til áfalla sem kalli á útgreiðslu úr sjóðnum.
En þetta er mjög verðugt verkefni til að fara nánar ofan í saumana á. Ég vil nefna að ein leið til að nálgast þau sjónarmið sem hv. þingmaður nefndi væri hreinlega að segja að engar greiðslur af nokkru tagi mættu fara úr sjóðnum fyrr en hann næði þessari lágmarksstærð. Þá værum við í sjálfu sér að nálgast sömu hugsunina, bara engar greiðslur fyrr en sjóðurinn hefur náð ákveðinni stærð. Þá þyrftum við ekki að binda það við það að við værum að bíða eftir stóra náttúruáfallinu eða hinum miklu náttúruhamförum.
Einmitt í þessu sambandi vil ég nefna að í greinargerð með frumvarpinu er brugðist við ýmiss konar ábendingum frá mörgum aðilum, en ég geri líka ráð fyrir að umsagnir haldi áfram að berast. Við höfum svo sem létt á umsagnarferli við þinglega meðferð með því að nota samráðsgáttina. Hún hefur gagnast í þessu máli eins og mjög má sjá af greinargerðinni, en örugglega munu koma mjög gild sjónarmið upp í þinglegri meðferð, bæði beint frá þingmönnum og frá umsagnaraðilum sem veita nefndinni verðugt verkefni að fást við.
Ég ætla undir lok máls míns að þakka öllum þeim sem hafa komið að málinu og þá sérstaklega þeim sem tóku sæti í sérfræðingahópnum á sínum tíma fyrir þeirra mjög svo mikilvæga innlegg. Það er sjálfsagt að greina frá því að við lögðum upp með það í upphafi að vera mjög opin og spyrja mjög opinna spurninga, eins og þeirra hvort yfir höfuð væri einhver ástæða til að koma á fót slíkum sjóði. Við veltum líka fyrir okkur hvort slíkur sjóður ætti að hafa einhvers konar sveiflujafnandi hlutverk. Svarið við því var neikvætt. Hvort við værum með ástæðu til að fara í frekari skuldauppgreiðslu eða frekar í lífeyrisskuldbindingauppgreiðslur o.s.frv. Ég tel að öllu þessu séu gerð góð skil í frumvarpinu.
Mig langar sömuleiðis að nefna að ég hef lagt til að málið gangi til efnahags- og viðskiptanefndar þar sem ég held að það eigi ágætlega heima. Ég teldi fyrir mína parta fara vel á því að nefndin fengi til liðs við sig fjárlaganefnd og fengi umsögn þaðan vegna þess að ekki verður horft fram hjá því að hér er horft til lengri tíma í ríkisfjármálalegu samhengi og þá værum við að kalla til liðs við þá sem sitja í efnahags- og viðskiptanefnd fleiri þingmenn og gætum mögulega í vinnunni náð utan um breiðari sjónarmið og vonandi fangað þau atriði sem skipta máli fyrir sem breiðasta sátt.
Frú forseti. Ég ætlaði einmitt að nefna þetta með nefndirnar. Ég ætla ekki að draga þessa umræðu mikið á langinn en ég fagna því að málið sé opið. Hæstv. ráðherra leggur áherslu á að ná sátt um málið og það þýðir að við förum yfir öll sjónarmiðin með opnum huga. Hæstv. ráðherra leggur til að málið fari til efnahags- og viðskiptanefndar og sjálfri finnst mér það gaman, af því að ég sit þar og fæ þá að vinna með málið, en sem fjárlaganefndarmaður til margra ára hefði ég hins vegar haldið að eins og málið er vaxið væri það klárlega fjárlaganefndarmál. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann hafi farið yfir þetta með þingfundaskrifstofunni með tilliti til skilgreiningar á hlutverkum nefndanna.
Virðulegi forseti. Ég held að mörg mál séu þannig vaxin að það verður á endanum álitamál hvar þau eiga best heima. Ég kallaði eftir því úr ráðuneyti mínu að fá leiðsögn frá þinginu um það og þetta var leiðsögnin sem ég fékk, að mönnum þætti málið þannig vaxið. Ég held að meginrökin fyrir því séu þau að í grundvallaratriðum erum við kannski að gera ráðstafanir sem mætti kalla efnahagsráðstafanir frekar en ráðstafanir í ríkisfjármálum og að fjárlaganefndin fjalli þá meira beint um fjárlagatengd málefni og auðvitað fjármálastefnuna, á meðan við horfum jafnvel til töluvert mikið lengri tíma. En eins og ég sagði í upphafi eru þetta oft á tíðum áhorfsatriði, fer eftir því úr hvaða sæti maður situr þegar maður horfir á málið, og það var reyndar ástæðan fyrir því að ég var ekki vissari en svo að mér fannst rétt að spyrja þingið.
Frumvarpið gengur til 2. umr.
Frumvarpið gengur til efh.- og viðskn.