Ferill 200. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
108. löggjafarþing 1985–86.
Nr. 4/108.
Þskj. 432 — 200. mál.
Þingsályktun
um staðfestingu samkomulags um loðnuveiðar Norðmanna.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að staðfesta fyrir Íslands hönd samkomulag milli Íslands og Noregs um loðnuveiðar norskra veiðiskipa innan íslenskrar lögsögu á árinu 1986. Samkomulagið er prentað hér sem fylgiskjal.
Samþykkt á Alþingi 21. desember 1985.