Ferill 322. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
108. löggjafarþing 1985–86.
Nr. 9/108.
Þskj. 927 — 322. mál.
Þingsályktun
um fullgildingu samnings um stofnun Alþjóðahugverkastofnunarinnar.
Alþingi ályktar að heimila ríkisstjórninni að fullgilda fyrir Íslands hönd samning um stofnun Alþjóðahugverkastofnunarinnar sem undirritaður var í Stokkhólmi 14. júlí 1967. Samningurinn er prentaður hér sem fylgiskjal.
Samþykkt á Alþingi 17. apríl 1986.