Framhald fundar í Sþ.
Mánudaginn 07. nóvember 1988

     Ingi Björn Albertsson:
    Hæstv. forseti. Ég verð leiðréttur fari ég með rangt mál en ég veit ekki betur en að meginforseti hafi lofað því að hv. 5. þm. Reykv., sem fer út af þingi eftir þennan dag, fái að mæla fyrir sínum málum sem hér eru á dagskrá. Það standa tvö mál enn þá út af borðinu og ég óska þess að forseti upplýsi það hvort hann fái að mæla fyrir sínum málum eða ekki.