Vandi sjávarútvegsins
Mánudaginn 05. desember 1988

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Ég vil þakka þingmanninum þessi vinsamlegu tilmæli. En svo að þingheimi sé skýrt frá hvað hér er um að ræða, þá hafði ég lofað hv. 1. þm. Vestf. að komast hér að vegna þess að hann þarf að fara frá, gleymdi því síðan, og ef hv. 4. þm. Vesturl. vill gera hlé á ræðu sinni þá væri mér þökk í því, og hv. 1. þm. Vestf. tekur nú til máls. Það er ljóst að hér verður fram haldið fundi að loknum þingflokksfundum þannig að ég vil þakka hv. 4. þm. Vesturl. fyrir þetta.