Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti mun að sjálfsögðu leitast við að ljúka sem allra mestu af þeim málum sem fyrir liggja fyrir jólaleyfi, en getur ekki annað en orðið við síendurteknum beiðnum um utandagskrárumræður eða þingskapaumræður þannig að það hefur verið hingað til afar erfitt að halda dagskrá. Vissulega skal forseti reyna að sjá svo til að dagur finnist til að afgreiða þau mál að því marki sem mögulegt er, en að sjálfsögðu er ólíklegt að hægt verði að afgreiða öll þau mál sem nú liggja fyrir.