Búminjasafn á Hvanneyri
Fimmtudaginn 15. desember 1988

     Flm. (Ingi Björn Albertsson):
    Herra forseti. Ég þakka hv. þingflokksformanni Alþfl. fyrir að sýna okkur sinn innri mann. Það kom mjög ljóslega fram í hans máli. En ég vil einfaldlega spyrja aðra alþýðuflokksmenn, sem hér eru inni, því að nú talar hann í nafni heils þingflokks, hvort þeir taki undir slík vinnubrögð og hvort slík vinnubrögð eigi að viðhafast hér í þinginu í framtíðinni. Það er lítil vandi að fresta umræðum ætíð ef mál skarast á einn eða annan hátt fyrir utan það að ég sé nánast engin rök fyrir því þó að hv. þm. ásamt sínum kollegum úr þingmannamafíunni þarna telji sitt mál eitthvað betur fallið en okkar mál.