Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Það er ljóst að þessari umræðu verður ekki lokið nú og verður því meðferð málsins frestað. Ég tek fram um fund þann sem hefst nú í deildum kl. 3 eða átti raunar að vera hafinn að sú ákvörðun var tekin í fullu samráði við formenn allra þingflokka þannig að ég get ekki annað en staðið við það samkomulag. Það er alveg ljóst að enn eru margir á mælendaskrá í því máli sem við höfum nú verið að fjalla um, sem er 4. mál á dagskrá, og því óhjákvæmilegt að því verði nú frestað.