Framhaldsskólar
Laugardaginn 17. desember 1988

     Frsm. 1. minni hl. menntmn. (Danfríður Skarphéðinsdóttir):
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 270 frá 1. minni hl. menntmn. og það hljóðar svo, með leyfi forseta:
    ,,Þó að halda megi fram með nokkrum rökum að skortur á löggjöf um framhaldsskóla hafi auðveldað jákvæða og öra þróun mála í framhaldsskólum telur Kvennalistinn að tímabært hafi verið að setja um þá rammalöggjöf. Við umræður um frv. til l. um framhaldsskóla á Alþingi sl. vor gagnrýndu þingkonur Kvennalistans ýmsa þætti þess og fluttu brtt. við margar greinar þess. Að mati Kvennalistans var helstu agnúa frv. að finna varðandi stjórnunarþáttinn og aðbúnað nemenda og lutu brtt. því einkum að þessu tvennu. Allar brtt. Kvennalistans voru felldar. Því koma skoðanir Kvennalistans á ýmsum mikilvægum þáttum í starfi framhaldsskólans ekki fram í þeim lögum sem samþykkt voru á Alþingi 9. maí 1988. Skólamenn hafa einnig gagnrýnt marga þætti laganna. Að mati þeirra, einkum stjórnenda skólanna, var þó stigið mikilvægt skref við lagasetninguna með því að kveðið er á um kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna stofnkostnaðar framhaldsskólanna og yfirtöku ríkissjóðs á rekstri þeirra.
    Með þeirri frestun á hluta laganna sem hér er lögð til er viðhaldið þeirri mismunun sem nú er eftir því um hvers konar skóla er að ræða. Sveitarfélög sem taka þátt í rekstri framhaldsskóla hafa gert sínar áætlanir með tilliti til þess að fjármálakafli laganna taki gildi nú um áramótin. Kvennalistinn telur brýnt að þessi mismunun verði afnumin.
    Þrátt fyrir þá vinnu sem nú fer fram við smíð reglugerða og að boðuð hefur verið viss endurskoðun á ýmsum þáttum laganna sem Kvennalistinn hefur gagnrýnt getur 1. minni hl. ekki stutt þá frestun á framkvæmd laganna sem frv. gerir ráð fyrir og mun því ekki taka þátt í afgreiðslu málsins.``
    Ég vil geta þess hér um leið og láta það koma fram að þegar það frv. var samið sem samþykkt var á Alþingi sl. vor var afar lítið samráð haft við kennara í landinu, en þeir hafa að sjálfsögðu undir forustu stjórnenda skólanna byggt upp það framhaldsskólakerfi sem við búum nú við. Ég tel að þar hafi verið óeðlilega staðið að málum og ég vonast til þess að hið allra fyrsta fari fram endurskoðun á ýmsum mikilvægum þáttum þeirra laga sem nú eru í gildi.