Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1988
Miðvikudaginn 21. desember 1988

     Stefán Guðmundsson:
    Herra forseti. Örstutt. Ég vil aðeins segja það við hv. þm. Halldór Blöndal, að ég hef enga trú á því, Halldór Blöndal, að þetta mál eða önnur vinnist með einhverjum hávaða og köllum hér í þessari deild. Ég undirstrika hins vegar það sem hæstv. fjmrh. sagði hér, nú rétt áðan, og ég endurtek það sem hann sagði: ,,Sameiginleg niðurstaða mun fást í þessu máli``, sagði hæstv. fjmrh. Við þekkjum það hvað bæði hæstv. sjútvrh. og hæstv. iðnrh. hafa sagt í þessu máli. Við skulum bíða og spyrja að leikslokum í málinu.