Bráðabirgðafjárgreiðslur úr ríkissjóði
Fimmtudaginn 22. desember 1988

     Frsm. fjh. - og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti fjh.- og viðskn. sem hefur fjallað um frv. og mælir með því að það verði samþykkt eins og það liggur fyrir á þskj. 360.
    Hv. þm. Stefán Valgeirsson sat fund nefndarinnar og er samþykkur þessu áliti.
    Undir nefndarálitið rita allir nefndarmenn.