Kynferðisafbrot gagnvart börnum
Fimmtudaginn 23. febrúar 1989

     Fyrirspyrjandi (Salome Þorkelsdóttir):
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svar hans og ég fagna því að það hefur verið staðið við þau fyrirheit sem gefin voru í því skriflega svari sem ég vitnaði til áðan og ég tek undir að þess er þá að vænta að upplýsingar sem leitað verður eftir í framtíðinni, m.a. varðandi kynferðisafbrot gagnvart börnum, verði þá aðgengilegri og tiltækar þegar á þarf að halda.