Jöfnun á námskostnaði
Þriðjudaginn 14. mars 1989

     Stefán Guðmundsson:
    Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir skilning hans á þessu máli. Mér er það ljóst að það er kannski ekki alveg eins þægilegt og menn álíta við fyrstu sýn að orða slíkt, en mestu máli skiptir hver hugurinn er. Ég fagna því að ég held að það sé ekki langt bil á milli okkar í þessu máli, mín og hæstv. menntmrh., og ég treysti því þess vegna að á þessu verði sérstaklega tekið við setningu væntanlegrar reglugerðar og þakka enn skilning ráðherra á málinu.