Eignarleigustarfsemi
Þriðjudaginn 21. mars 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. deildarinnar vannst einnig tími til að athuga þær breytingar sem Ed. gerði á þessu frv., sem voru reyndar ekki miklar heldur var hér einungis um orðalagsbreytingar að ræða, og við föllumst á að þarna sé a.m.k. jafngilt orðalag ef ekki betra og leggjum til að frv. verði samþykkt í þeirri mynd sem Ed. gekk frá því.