Vaxtalög
Þriðjudaginn 04. apríl 1989

     Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir hönd viðskrh., en ég gegni störfum fyrir hann þar sem hann er í opinberum erindagjörðum erlendis.
    Frv. það sem hér liggur fyrir um breytingar á vaxtalögum, nr. 25 27. mars 1987, eins og það kemur frá Nd., felur í sér að gerðar verði nokkrar endurbætur á vaxtalögum að fenginni reynslu af framkvæmd þeirra.
    Í 1. og 2. gr. frv. eru gerðar tillögur um breytingar á 5. og 7. gr. núgildandi vaxtalaga. Þessar tillögur miða að því að gera ákvæðin skýrari þannig að þau verði ótvírætt í samræmi við þá ætlan löggjafans þegar vaxtalögin voru sett að vextir af samningsskuldum og skaðabótakröfum breytist í hátt við vegið meðaltal vaxta hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum, annars vegar á nýjum almennum útlánum og hins vegar á almennum óbundnum sparisjóðsreikningum.
    Í 3. gr. frv. er lagt til að ákvæði vaxtalaga um tilkynningarskyldu innlánsstofnana til Seðlabankans um þau vaxtakjör sem hjá þeim stofnunum gilda, skuli framvegis einnig taka til verðbréfafyrirtækja eftir því sem við getur átt. Ákvæðið stuðlar að auknu jafnræði um upplýsingaskyldu á fjármagnsmarkaði.
    Í 4. gr. frv. er gerð tillaga um orðalagsbreytingu á 1. mgr. 9. gr. núgildandi vaxtalaga en með því móti verður greinin nákvæmar orðuð en nú er. Samkvæmt því er ljóst að dráttarvextir skulu greiðast frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi. Fari greiðsla fram á gjalddaga skulu engir dráttarvextir greiddir.
    Þá er lagt til að við 9. gr. vaxtalaganna bætist ný málsgrein, sem verði 2. mgr. 9. gr., þess efnis að dráttarvextir skuli ætíð reiknast sem dagvextir.
    Í 5. gr. frv. er lagt til að í 14. gr. vaxtalaganna komi ný málsgrein varðandi kröfugerð um dráttarvexti um málshöfðun fyrir dómstólum. Þessi tillaga er flutt vegna ábendinga sem hafa komið fram frá fulltrúum við borgardóm Reykjavíkur og frá Lögmannafélagi Íslands. Með þessari breytingu er veitt heimild til þess að gera dráttarvaxtakröfu í stefnum miklu einfaldari ef um er að ræða peningakröfu sem gjaldfallið hefur eftir gildistöku vaxtalaganna. Ef þetta verður samþykkt er ekki lengur þörf á þeirri dráttarvaxtaþulu sem tíðkast hefur og menn kannast við í stefnum vegna peningaskuldbindinga sem gjaldfallið hafa fyrir gildistöku vaxtalaganna.
    Þá er í 6. gr. frv. lagt til að í vaxtalögin komi nýr kafli sem heitir ,,Vaxtakjör opinberra fjárfestingarlánasjóða``. Almenn ákvæði um vaxtakjör fjárfestingarlánasjóða voru áður í lögum nr. 13/1975, en þau voru felld úr gildi í lok liðins árs um leið og veðdeildir bankanna urðu skattskyldar. Enda var upphaflega ráðgert að gera sjóðina sjálfa einnig skattskylda. Af því varð ekki eins og hv. þm. er kunnugt. Því þykir rétt að opinberir fjárfestingarlánasjóðir búi við samræmdar reglur um vaxtakjör eins og ráð er gert fyrir í þessu frumvarpi. Reyndar er það svo að regla hliðstæð þeirri sem hér er gerð tillaga um er í gildi í einstökum lögum um

fjárfestingarlánasjóði, t.d. í lögum um Iðnlánasjóð sem gefin voru út að nýju í samfelldum texta sumarið 1987. Í samræmi við þetta er viðskrh. hér heimilað samkvæmt tillögunni að setja meginreglur um lánakjör opinberra fjárfestingarlánasjóða og jafnframt eru þar settar nánari verklagsreglur um útfærsluna.
    Í 7. gr. frv. er gerð tillaga um breytingu á ákvæði vaxtalaga um refsiábyrgð fyrir misneytingu aðstöðu við vaxtatöku. Breytingin tengist nýgerðri breytingu á 9. gr. laga um Seðlabanka Íslands, sbr. lög nr. 11/1989, en þar er lagt til að Seðlabankanum verði framvegis heimilað að binda vaxtaákvarðanir innlánsstofnananna takmörkum til þess að vextir verði hóflegir og ekki hærri en þeir eru að jafnaði í helstu viðskiptalöndum Íslendinga, svo og til að draga úr óhæfilegum vaxtamun milli inn- og útlána eins og nánar greinir í áðurnefndum lögum um Seðlabanka Íslands. Þessi tillaga er gerð til þess að gera það alveg skýrt að viðmiðun við misneytingarmat skuli vera þeir vextir sem gilda eftir íhlutun Seðlabankans ef um hana er að ræða.
    Í 7. gr. frv. er lagt til að tekið verði mið af því hvort ákvörðun samkvæmt 9. gr. seðlabankalaga hafi verið tekin. Hafi Seðlabankinn hlutast til um vexti útlána hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum á grundvelli 9. gr. skulu vaxtamörk útlána hvað varðar refsiábyrgð fyrir okur vera þau sem Seðlabankinn þar með hefur ákveðið.
    Hæstv. forseti. Þar með hef ég lokið við að lýsa í meginatriðum frv. því til breytinga á vaxtalögum sem hér er til umræðu. Ég leyfi mér að leggja til að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.