Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Borist hefur eftirfarandi bréf:
,,Halldór Blöndal, varaformaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:
,,Þar sem Matthías Bjarnason, 1. þm. Vestf., er veikur og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vestfjarðakjördæmi, Einar Kristinn Guðfinnsson, taki sæti á Alþingi í forföllum hans.``
Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Óli Þ. Guðbjartsson,
forseti Nd.``
Einar Kristinn Guðfinnsson hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.