Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Herra forseti. Það mun hafa farið fram hjá mér þegar tillaga var gerð um nefnd væntanlega af hæstv. menntmrh., en venja mun vera að mál af þessu tagi fari til fjh.- og viðskn. Fyrra frv. um svipað efni fór þangað og ég lét athuga það sérstaklega þegar ég mælti fyrir því máli að frv. um þjóðarbókhlöðuskattinn á sínum tíma var afgreitt í fjh.- og viðsn. og það var niðurstaða hér við þáverandi hæstv. forseta að það væri rétt að það færi þangað þannig að ég tel rétt að þessi mál verði bæði í sömu nefnd.