Guðrún Agnarsdóttir:
    Hæstv. forseti. Aðeins um þingsköp af gefnu tilefni. Þegar ég sat sem varaforseti í stól forseta hér áðan þá var það samkvæmt samkomulagi við hv. 7. þm. Reykn. að umræðu um söluskatt var frestað af því að hæstv. forsrh. var ekki kominn á fundinn. En í sama vetfangi og ég hafði tekið annað mál á dagskrá gekk hæstv. forsrh. í salinn. Það var algjör tilviljun og varð ekki við neitt ráðið um ferðir hæstv. forsrh. Alla vega ekki af minni hálfu.