Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Ég þakka fyrir þá röggsemi að hafa nafnakall hér við afgreiðslu gerðabókar sem leiddi það af sér að nægilega margir þingmenn komu hingað inn í þingsalinn til þess að hægt væri að afgreiða fundagerðir tveggja síðustu funda þó ekki mætti miklu muna og vil mega vona það að hæstv. forseti fylgi þessu eftir með því að setja ekki fund eftirleiðis nema hér séu nægilega margir þingmenn til þess að hægt sé að afgreiða gerðabók fyrirhafnarlaust eins og hér fyrrum tíð og góð venja hafði skapast um.