Sjálfseignarstofnanir
Föstudaginn 05. maí 1989

     Frsm. allshn. (Guðni Ágústsson):
    Hæstv. forseti. Á þskj. 1008 er nál. um till. til þál. um setningu laga um sjálfseignarstofnanir frá allshn. Nefndin hefur fjallað um till. og borist umsögn um málið frá Lögmannafélagi Íslands.
    Nefndin leggur til að till. verði samþykkt með breytingu sem flutt er á sérstöku þskj. Á þskj. 1009 er brtt. við till. til þál. um setningu laga um sjálfseignarstofnanir frá allshn. Tillgr. orðist þannig:
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir gerð frv. til laga um sjálfseignarstofnanir sem lagt verði fyrir næsta löggjafarþing.
    Undir þetta álit skrifa allir nefndarmenn allshn. sameinaðs þings.