Starfsemi lífeyrissjóða
Fimmtudaginn 11. maí 1989

     Fyrirspyrjandi (Guðmundur H. Garðarsson):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir skýr svör um stöðu þessara mála og skil vel varúð hans í þessum efnum. En ég vil samt leggja áherslu á það að hann standi við það fyrirheit sem hann gaf með beinum og óbeinum hætti: að sú endurskoðun fari fram í sumar sem hann hefur hér lýst og að frv. til laga um starfsemi lífeyrissjóðanna verði lagt fram á næsta þingi.