Staðgreiðsla opinberra gjalda
Föstudaginn 19. maí 1989

     Salome Þorkelsdóttir:
    Hæstv. forseti. Mér finnst ástæða til að fagna niðurstöðu hv. fjh.- og viðskn. í þessu máli. Vegna orða hv. 5. þm. Reykv. um að Sjálfstfl. hafi staðið að því að setja þessi lög á sínum tíma vil ég svara því til að þetta sé kannski dæmigert um það að þegar Sjálfstfl. eða þingmenn hans verða varir við að eitthvað sem þeir hafa áður staðið að því að samþykkja hefur verið rangt eða réttlætinu ekki fullnægt, þá er hann alltaf tilbúinn að endurskoða sína afstöðu. Það tel ég að góðir stjórnmálamenn eigi að gera.