Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Sú breyting sem Ed. gerði á frv. var að breyta stjórn í sjóðnum, þ.e. í stað þess sem Nd. ákvarðaði, að í stjórn sjóðsins sætu formaður og varaformaður fjvn., leggur Ed. til að í stjórn sjóðsins sitji þrír menn kjörnir af Alþingi. Við í fjh.- og viðskn. teljum að þetta sé eðlileg breyting og eðlilegt skipulag og þar sem hlutur stjórnarandstöðu er betur tryggður en með hinu laginu föllumst við á brtt. Ed. og leggjum til að frv. verði samþykkt í deildinni.