Framhaldsskólar
Laugardaginn 20. maí 1989

     Friðrik Sophusson:
    Virðulegur forseti. Mér finnst full ástæða til þess að gera grein fyrir atkvæði mínu hér og vil gera það með tilvísun til þess sem hv. 3. þm. Reykv. sagði um undirbúning þessa máls. Það virðist vera með þeim hætti að það sé ákaflega illa undirbúið og þess vegna kýs ég að fylgja tillögu um að vísa málinu frá og segi já.