Ferill 189. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 189 . mál.


Nd.

321. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 75/1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum.

Frá meiri hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið. Kvaddi hún á fund sinn Björn Arnórsson og Ögmund Jónasson frá BSRB, Þórarin Þórarinsson frá VSÍ, Ara Skúlason og Lilju Mósesdóttur frá ASÍ, Birgi Björn Sigurjónsson og Pál Halldórsson frá BHMR, Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra, Snorra Olsen, Bolla Bollason og Maríönnu Jónasdóttur frá fjármálaráðuneyti, Gunnar Helga Hálfdanarson og Óttar Örn Petersen frá Samtökum sparifjáreigenda, Kristínu Höllu Jónsdóttur frá Húseigendafélagi Reykjavíkur, Víglund Þorsteinsson, Lýð Friðjónsson og Bjarna Þór Jónsson frá Félagi ísl. iðnrekenda og Hólmgeir Jónsson, hagfræðing Sjómannasambandsins.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem fluttar eru á sérstöku þingskjali.
    Breytingarnar eru þessar:
1.     Ákvæði 31. gr. gildandi laga um gjafir til menningarmála o.fl. haldast óbreytt.
2.     Heimilt er fyrirtæki að yfirtaka annað, enda sé það í skyldum rekstri ellegar fyrirtækið haldi áfram rekstrinum.
3.     Skatthlutfall hækkar um 2,3% frá gildandi lögum.
4.     Persónuafsláttur hækkar í 214.104 kr., þ.e. í samræmi við gildandi lög.
5.     Barnabætur hækka til samræmis við gildandi lög.
6.     Barnabótaauki hækkar í samræmi við gildandi lög.
7.     Eignarskattur af eign umfram 7 millj. kr. verður 2,7%.

Alþingi, 20. des. 1988.



Páll Pétursson,

Ragnar Arnalds.

Árni Gunnarsson.


form., frsm.



Guðmundur G. Þórarinsson.