Ferill 224. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 224 . mál.


Ed.

650. Breytingartillaga



við frv. til l. um breyt. á l. nr. 77/1979, um Háskóla Íslands, sbr. l. nr. 8/1985.

Frá meiri hl. menntamálanefndar (EG, JHelg, DS, SkA, VS, GuðmÁ).



    Í stað lokamálsliðar 4. efnismgr. 1. gr. komi: Engum má veita prófessorsembætti, dósentsstarf eða lektorsstarf við Háskólann nema meiri hluti dómnefndar telji hann hæfan og meiri hluti viðstaddra á deildarfundi greiði honum atkvæði í embættið eða starfið. Ef fleiri umsækjendur en tveir eru í kjöri við atkvæðagreiðsluna á deildarfundi og enginn þeirra hlýtur meiri hluta við fyrstu atkvæðagreiðslu skal kosið á ný milli þeirra tveggja sem flest atkvæði hlutu. Nú fellst menntamálaráðherra ekki á tillögu deildarfundar og skal þá auglýsa embættið eða starfið að nýju.