Ferill 387. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 387 . mál.


Sþ.

725. Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um fjárreiður fræðslustjóraembætta landsins.

Frá Júlíusi Sólnes.



    Hverjar voru fjárveitingar samkvæmt fjárlögum 1983–1988 til starfsemi á vegum allra embætta fræðslustjóra á landinu? Hverjar urðu fjárveitingar til fræðslustjóranna samkvæmt niðurstöðum ríkisreikninga sama tímabil? Óskað er eftir að fram komi hlutfallslegar breytingar milli fjárlaga og reiknings, þ.e. hversu miklu var eytt umfram fjárlög. Enn fremur hverjar heildarniðurstöður fjárlaga og ríkisreikninga voru þetta sama tímabil hvað varðar rekstur ríkisins og hver hlutfallsleg eyðsla varð umfram fjárlög.



Skriflegt svar óskast.