Ferill 389. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 389 . mál.


Sþ.

727. Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um niðurstöður úttektar á starfsemi fræðsluskrifstofa landsins.

Frá Júlíusi Sólnes.



    Hafa niðurstöður úttektar á fræðsluskrifstofum landsins, sem menntamálaráðuneytið lét gera í ársbyrjun 1987, verið kynntar formönnum fræðsluráða? Hefur skýrslu um þessa úttekt verið skilað? Ef svo er, mun ráðherra beita sér fyrir því að henni verði dreift til alþingismanna?