Ferill 42. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 42 . mál.


Sþ.

747. Nefndarálit



um till. til þál. um nýjar reglur um starfslok og starfsréttindi.

Frá félagsmálanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið á nokkrum fundum. Umsagnir bárust frá Alþýðusambandi Íslands, Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna, landlækni og Vinnumálasambandi samvinnufélaganna og kemur þar fram stuðningur við efni tillögunnar.
    Nefndin mælir með samþykkt tillögunnar með breytingu á orðalagi og heiti hennar sem fram kemur á sérstöku þingskjali.

Alþingi, 6. apríl 1989.



Hjörleifur Guttormsson,

Eiður Guðnason,

Guðni Ágústsson.


form., frsm.

fundaskr.



Birgir Ísl. Gunnarsson.

Hreggviður Jónsson.

Alexander Stefánsson.



Þórhildur Þorleifsdóttir.