Ferill 35. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 35 . mál.


Nd.

925. Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 63/1979, um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála, með síðari breytingum.

Frá fjárhags- og viðskiptanefnd.



    Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og leggur til að það verði samþykkt. Frumvarpið felur í sér að felldar verði úr gildi takmarkanir á erlendum vörukaupalánum vegna innflutnings. Núgildandi ákvæði kveða á um að ekki megi flytja vörur til landsins nema greiðsla hafi verið innt af hendi eða tryggð með öðrum hætti, svo sem með lántöku eða greiðslufresti.
    Kristín Halldórsdóttir og Ingi Björn Albertsson voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 24. apríl 1989.



Páll Pétursson,

Guðmundur G. Þórarinsson.

Ragnar Arnalds.


form., frsm.



Einar Kr. Guðfinnsson.

Árni Gunnarsson.