Ferill 504. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 504 . mál.
Sþ.
1072. Fyrirspurn
til dómsmálaráðherra um símahleranir.
Frá Kristínu Halldórsdóttur.
1. Hvaða reglur gilda um símahleranir hér á landi?
2. Hversu oft hefur símahlerunum verið beitt hér á síðustu 10 árum, sundurliðað eftir árum? Hverjir hafa beðið leyfis til hlerana í umgetnum tilvikum, hverjir framkvæmdu þær og í hvaða tilgangi var þeim beitt?
3. Hver er réttur þolenda símahlerana?
4. Telur ráðherra tryggt að alltaf sé farið að lögum og reglum varðandi símahleranir?
Skriflegt svar óskast.