Ferill 372. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 372 . mál.


Nd.

1170. Framhaldsnefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. nr. 67/1971, um almannatryggingar, ásamt síðari breytingum.

Frá heilbrigðis- og trygginganefnd.



    Að ósk eins nefndarmanna kom nefndin aftur saman til að fjalla um frumvarpið milli 2. og 3. umræðu. Nefndin fékk á sinn fund Hauk Þórðarson, formann Læknafélags Íslands, og Gest Jónsson, formann Lögmannafélags Íslands.
    Nefndin mælir enn sem fyrr með samþykkt frumvarpsins en hefur ákveðið að leggja til frekari breytingar á frumvarpinu. Tillögur nefndarinnar eru fluttar á sérstöku þingskjali.
    Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Jón Kristjánsson voru fjarverandi við lokaafgreiðslu málsins.

Alþingi, 11. maí 1989.



Guðrún Helgadóttir,

Jón Sæmundur Sigurjónsson,

Geir H. Haarde,


form., frsm.

fundaskr.

með fyrirvara.



Sólveig Pétursdóttir,

Finnur Ingólfsson.


með fyrirvara.