Ferill 61. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 61 . mál.


Sþ.

1214. Breytingartillaga



við till. til þál. um athugun á útboðum opinberra rekstrarverkefna.

Frá fjárveitinganefnd.



    Tillgr. orðist svo:
    Alþingi ályktar að fela fjármálaráðherra í samráði við aðra ráðherra að láta kanna tilhögun á útboðum opinberra rekstrarverkefna sem hér segir:
1.     Á hvaða sviðum og í hve miklum mæli slíkum útboðum hafi verið beitt hjá ríkinu og stofnunum þess á næstliðnum áratug.
2.     Hvaða reynsla hefur fengist af slíkum útboðum, m.a. með tilliti til kostnaðar miðað við sambærileg verkefni sem unnin hafa verið án útboðs.
3.     Á hvaða sviðum ríkisrekstrar rétt þyki og hagkvæmt að efna til slíkra útboða og hvaða sjónarmiða skuli gæta við val slíkra útboðsverkefna.
    Niðurstöður könnunarinnar skulu lagðar sem skýrsla fyrir Alþingi.