Ferill 499. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.



1988–89. – 1058 ár frá stofnun Alþingis.
111. löggjafarþing. – 499 . mál.


Nd.

1273. Nefndarálit



um frv. til l. um ráðstafanir vegna kjarasamninga.

Frá minni hl. fjárhags- og viðskiptanefndar.




    Með frumvarpi þessu er ríkisstjórnin að efna nokkur þeirra loforða sem hún gaf til þess að greiða fyrir kjarasamningum Alþýðusambands Íslands við Vinnuveitendasamband Íslands og Vinnumálasamband samvinnufélaganna um síðustu mánaðamót.
    Allar greinar frumvarpsins miða fyrst og fremst að bættum hag atvinnurekstrarins, nema 6. og 7. gr. sem auka rétt til bóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Svo réttmæt og sjálfsögð sem sú aðgerð er þá má furðu sæta að enn sé talin ástæða til að vísa á Atvinnuleysistryggingasjóð sem ríkisvaldið hefur þegar svipt lögboðnu ríkisframlagi, a.m.k. næstu tvö ár, jafnframt því sem líkur eru á verulegu og vaxandi atvinnuleysi á þessu ári.
    Í 1. gr. frumvarpsins er enn gripið til gamalkunnugs ráðs, þess að veita Verðjöfnunarsjóði fiskiðnaðarins heimild til lántöku til greiðslu verðbóta á freðfisk og hörpudisk. Lokamálsgrein 1. gr. mótast af fullkomnu óraunsæi þar sem reiknað er með endurgreiðslu sjóðsins á næstu þremur árum eftir að lánið er tekið. Engar líkur eru á því að hagur viðkomandi greina batni svo að þær geti staðið undir slíku og flestum ljóst að frekari aðgerða er þörf þegar þessum sleppir. Þrátt fyrir loforð ríkisstjórnarinnar um einhverjar slíkar aðgerðir er ekki frekar af þeim að frétta í frumvarpinu né greinargerð.
    Í 5. gr. er kveðið á um hækkun jöfnunargjaldsins en að öðru leyti er efni frumvarpsins fólgið í því að nema burt skatta sem lagðir voru á eða hækkaðir í lok síðasta árs og voru þá yfirlýstir óhjákvæmilegir með tilliti til stöðu ríkissjóðs. Nú er tæpast eytt orðum að áhrifum þessara aðgerða á stöðu ríkissjóðs.
    Sérstaklega ber að fagna niðurfellingu vörugjalds á ýmsum aðföngum og framleiðsluvörum húsgagna-, trjávöru- og málmiðnaðar sem lögð er til í 4. gr., en svo illa var staðið að undirbúningi lagasetningar um vörugjald í
árslok 1988 að menn eru ekki enn búnir að átta sig á framkvæmdinni nú fimm mánuðum eftir gildistöku laganna. Afleitt er þó að ætla ákvæðum 4. gr. ekki að taka gildi fyrr en 1. september sem hefði í för með sér ómælda erfiðleika og samdrátt í fyrrgreindum iðnaði fram til þess tíma. Þess vegna leggur minni hl. til á þskj. 1274 að gildistaka þessa ákvæðis verði 1. júní nk.
    Fyrrgreind atriði eru öll mikilvæg fyrir atvinnureksturinn og auðvelda atvinnurekendum að standa við gerða kjarasamninga. Ekki er þó síður ástæða til beinna ráðstafana í þágu launafólks sem er gert að sætta sig við viljayfirlýsingar og loforð um nefndir og samráð. Hefði verið fullkomlega eðlilegt að gera með þessu frumvarpi ráðstafanir til að draga úr sköttum á launafólk á sama hátt og hér er verið að létta atvinnurekendum róðurinn.
    Til þess að bæta lítillega úr þessari vanrækslu leggur minni hl. til breytingar á þskj. 1274 sem eru samhljóða 1. og 2. gr. frumvarps á þskj. 789 sem er 429. mál þingsins. Önnur breytingartillagan á þskj. 1274 felur það í sér að einstæðir foreldrar geti nýtt ónotaðan persónuafslátt barna sinna, sem eiga hjá þeim lögheimili, á sama hátt og hjón eða karl og kona í sambúð geta gert. Í 3. breytingartillögu á þskj. 1274 felst að við fráfall maka verði álagning eignarskatts áfram með sama hætti og um hjón væri að ræða meðan hann situr í óskiptu búi. Með því væri leiðrétt það óréttlæti í lögunum að hjón geta nú átt allt að 14 millj. kr. eign áður en þau lenda í hærra skattþrepi, en falli annað þeirra frá þarf hitt að greiða miklu hærri skatt af nákvæmlega sömu eign.
    Loks vill minni hl. árétta að verði gengi krónunnar breytt verulega er nauðsynlegt að rétta hlut launafólks enn frekar, t.d. með niðurfellingu eða lækkun skatts á matvæli.
    Að samþykktum tillögum á þskj. 1274 leggur minni hl. til að frumvarpið verði samþykkt.

Alþingi, 19. maí 1989.



Ingi Björn Albertsson,

Kristín Halldórsdóttir,


fundaskr.

frsm.