Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson):
    Virðulegi forseti. Ég vil fullvissa hv. þm. og þingheim um það að ekki kemur til mála, að sjálfsögðu, að utanrrh. skuldbindi Ísland í þeim viðræðum sem eru fram undan. Til þess þarf samþykki Alþingis. Þessi misskilningur hlýtur að vera skýringin á þessu furðulega upphlaupi hv. þm.