Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (um þingsköp):
    Virðulegi forseti. Ef hér er um að ræða, sem mér heyrist og virðist að hér sé um að tefla, skjal frá framkvæmdastjórn Evrópubandalagsins til ráðherranefndar Evrópubandalagsins, þá hefur EFTA-samstarfið eða EFTA-ríkin hvert um sig engan sjálfsagðan aðgang að slíkum skjölum. Ég mun að sjálfsögðu kanna það hvort í samningaferlinu hafi verið lagður fram pappír af þessu tagi eða hvort hans sé að vænta, en meiru get ég að sjálfsögðu ekki lofað.