Aðbúnaður þingmanna í þingsal
Fimmtudaginn 14. desember 1989


     Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
    Forseti hefur fulla samúð með þessu vandamáli sem hv. 16. þm. Reykv. var hér að benda á, en getur ekki tekið undir það að upp verði tekinn sá siður að leyfa reykingar hér inni í þingsalnum og vonar svo sannarlega að til þess komi ekki. Hins vegar þykir forseta það eðlileg ábending og ósk að reynt verði að halda þessum dyrum lokuðum og getur tekið undir það að þær eigi að vera lokaðar þegar þingfundir standa yfir og mun koma þessu á framfæri.