Lánsfjárlög 1990
Föstudaginn 22. desember 1989


     Kristín Einarsdóttir:
    Virðulegi forseti. Í fjarveru Þórhildar Þorleifsdóttur mæli ég fyrir nál. á þskj. 461, en þar segir, með leyfi forseta:
    ,,Þrátt fyrir að óvenjulega mikil óvissa ríki um stöðu ríkisfjármála og að tölur breytist frá degi til dags þarf að afgreiða frv. til lánsfjárlaga fyrir árið 1990 í slíkum flýti að neðri deild er ætlaður til þess aðeins rúmur sólarhringur.
    Það gefur auga leið að á svo skömmum tíma er umfjöllun nefndarinnar um frv. aðeins til málamynda og varla að vænta marktækrar, sjálfstæðrar niðurstöðu --- einungis er um að ræða að staðfesta afgreiðslu efri deildar á meðferð málsins.
    Af þeim sökum lætur 1. minni hl. nægja að vísa til nál. 2. minni hl. fjh.- og viðskn. efri deildar á þskj. 401.
    Það má vera huggun harmi gegn þegar vinnuálag er með þessum brag að lánsfjárlög samþykkt frá Alþingi eiga ugglaust eftir að taka miklum breytingum áður en árið 1990 er allt. Plaggið allt er hvort eð er líkt og skrifað í sand en ekki klappað í stein.``
    Undir þetta ritar Þórhildur Þorleifsdóttir.