Húsnæðismál lögreglunnar í Stykkishólmi
Mánudaginn 22. janúar 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Ég vil aðeins fyrir minn hlut þakka þessa umræðu. Ég vonast til þess að hún verði okkur til aðstoðar í því að finna á þessu lausn nú allra næstu daga sem getur þó aldrei annað orðið en millibilslausn því að framtíðarlausnin hlýtur að verða bygging eins og hér hefur komið fram. Ef þessi umræða verður hins vegar til þess að flýta fyrir henni og auðvelda hana, þá er vel.