Lögregluvarðstofa í Stykkishólmi
Fimmtudaginn 22. febrúar 1990


     Dómsmálaráðherra (Óli Þ. Guðbjartsson):
    Hæstv. forseti. Rétt vegna seinustu orða hv. þm. um hversu leigusáttmálinn ætti að vera til langs tíma. Það er ekkert farið að ræða þá hluti enn þá vegna þess að verið er að athuga það boð verksmiðjunnar, sem fyrr er greint hér í þessum umræðum, hvort sá kostur er framkvæmanlegur eða ekki. Þá fyrst er hægt að ræða þessi atriði sem hv. þm. vék að í lok máls síns.