Skúli Alexandersson:
Herra forseti. Mér finnst við vera búin að bíða nógu lengi eftir umhverfisráðuneyti. Umræða um stofnun umhverfisráðuneytis er búin að standa yfir á þrettánda ár. Að fara að bæta við einhverjum mánuðum eða dögum nú held ég að sé hið versta mál. Þess vegna segi ég nei.