Laun forseta Íslands
Föstudaginn 23. febrúar 1990


     Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til l. um laun forseta Íslands. Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt óbreytt. Undir nefndarálitið rita allir nefndarmenn, Jón Kristjánsson, Ólafur G. Einarsson, Sighvatur Björgvinsson, Guðni Ágústsson, Friðjón Þórðarson, Ingi Björn Albertsson og Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir.