Vandi loðdýræktarinnar
Mánudaginn 12. mars 1990


     Eggert Haukdal:
    Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs hér til að þakka hv. 4. þm. Suðurl. fyrir hennar mál. Það voru orð í tíma töluð en þau voru þungur áfellisdómur yfir því hvernig hefur verið staðið að þessum málum af hálfu stjórnvalda. Ef þessi umræða nú, þegar loðdýraræktin er rétt komin í þrot, yrði þess valdandi að stjórnvöld vöknuðu alvarlega, þá væri vel.